Borgin málaði yfir veggjalistina
„Okkur brá heldur en ekki í brún þegar við mættum í vinnuna og sáum að það var verið að mála yfir listaverkið,“ segir Helga Ólafs, upplýsingafulltrúi Alþjóðahúss, en starfsmenn borgarinnar voru í óðaönn að mála yfir listaverk á bak við Alþjóðahúsið þegar starfsfólk mætti til vinnu á þriðjudagsmorgun.
Veggurinn sem um ræðir var málaður á Menningarnótt í fyrra og segir Helga hann alveg hafa fengið að vera í friði fyrir veggjakroti.
„Það er borin virðing fyrir svona listaverkum en áður var þessi veggur allur í kroti,“ segir Helga. Hún segir að leyfi hafi verið fengið hjá eiganda hússins áður en myndin var gerð og sagði eðlilegt að haft hefði verið samband áður en byrjað var að mála vegginn. „Það eru ekki mörg svona verk í bænum, þetta er bara spurning um eitt símtal. Þarna er greinilega um misskilning að ræða. Það er gott og gilt að uppræta veggjakrot en veggjalist er ekki hið sama og krot. Það þýðir ekki að álasa drengjunum sem máluðu yfir. Ef til vill fengu þeir ekki nægilega skýr skilboð. Veggjalist er endurnýjanleg og það er kannski spurning að auglýsa eftir áhugasömum gröffurum að taka að sér verkefnið,“ segir hún.
„Ef fólk hefur ekki sótt um leyfi til veggskreytinga eða myndskreytinga er málað yfir þær,“ segir Jakob Frímann Magnússon, framkvæmdastjóri miðborgarmála.
Hann segir allar myndskreytingar háðar leyfum frá byggingarfulltrúa. „Borgaryfirvöld eru í þessu verkefni að hreinsa og fjarlægja allt sem ekki hefur verið veitt sérstakt leyfi fyrir,“ segir hann.
Hann segir það undantekningu ef sótt hefur verið um leyfi fyrir veggskreytingum en bætir því jafnframt við að myndskreytingar geti verið æskilegar og nefnir verk á vegg hegningarhússins sem dæmi enda hafi hann fengið að vera óáreittur.
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 2. maí 2009, Innlent Amma á Facebook
- Þriðjudagur, 3. febrúar 2009, Innlent Verður aðeins lokað á álagstímum
- Þriðjudagur, 11. mars 2008, Innlent Slegist um stúdentshúfur
- Fimmtudagur, 4. október 2007, Innlent Krefjast þess að íslenskur sendifulltrúi verði kallaður heim
- Miðvikudagur, 16. júlí 2008, Innlent Vegglistaverk barna á Ísafirði skemmt
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“





































