Höfði boðinn upp í dag

Sumarhúsið að Höfða Mývatnssveit
Sumarhúsið að Höfða Mývatnssveit mbl.is

Hluti af Höfða við Mývatn ásamt sumarhúsi verða boðin til sölu á uppboði í dag. Uppboðið verður haldið af sýslumanninum á Húsavík kl. 15 og fer fram á eigninni sjálfri. Það er haldið til slita á sameign núverandi eigenda jarðarinnar, afkomenda Héðins Valdimarssonar og Guðrúnar Pálsdóttur en þau eignuðust allan Höfða árið 1930.

Svæðið sem um ræðir er nálægt tveimur hekturum að stærð og er yst á tanganum en Skútustaðahreppur á Höfða að öðru leyti.

Höfði í Mývatnssveit er einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum Norðurlands og er víðfrægur vegna undurfagurs landslags, gróðurfars og hins einstæða fuglalífs við Mývatn. Höfðinn sem upphaflega hét Hafurshöfði er klettatangi, sem gengur út í Mývatn að austanverðu. Hann er skógi vaxinn og tengist landi skammt frá þjóðveginum. Nú er þar friðað svæði sem er að stærstum hluta í eigu sveitarfélagsins, sem fólkvangur. Í Kálfastrandarvogi er einstæð náttúruperla, Kálfastrandarstrípar, sem eru sérstakar hraunmyndanir í vatninu, oft einnig nefndir Klasar.

Jörðin Höfði var áður hluti jarðarinnar Kálfastrandar. Árið 1913 seldu þáverandi eigendur Kálfastrandar Bárði Sigurðssyni litla landspildu vestan í höfðanum og var stærð hennar tilgreind átta dagsláttur. 

23. desember árið 1930 seldi Bárður Héðni Valdimarssyni býlið á Höfða ásamt eignarlóð. Jafnframt fékk Héðinn erfðafesturétt á öllum höfðanum hjá Kálfastrandarbændum. Héðinn og Guðrún Pálsdóttir, kona hans, reistu sumarbústað yst á höfðanum. 

Árið 1970 gaf Guðrún Pálsdóttur, ekkja Héðins, Skútustaðahreppi bæði eignarlandið og erfðafestulandið, að undanskildum 1 til 2 hekturum af eignarlandinu. Hluti eignarlandsins ásamt húsakosti sem var undanskilinn var áfram í eigu Guðrúnar og hét áfram Höfði.

Guðrún andaðist 11. ágúst árið 2000 og kom eignarhlutinn í Höfða í hlut barnabarna hennar við skipti á dánarbúinu. Það er þessi hluti Höfða sem verður boðinn upp í dag.

mbl.is
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert