Nýskráningum ökutækja fækkar um 11%

Fyrstu 158 daga ársins 2008 hafa 11.113 ökutæki verið nýskráð miðað við 12.494 ökutæki eftir jafn marga skráningardaga á síðasta ári. Þetta er 11% lækkun milli ára, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu.

Fyrstu 53 daga ársins hafði nýskráning ökutækja hinsvegar aukist um 46,8% miðað við sama tímabil í fyrra. Tekið skal fram að hér er um að ræða nýskráningu á öllum tegundum ökutækja.

Eigendaskipti ökutækja eru færri það sem af er árinu en á sama tímabili í fyrra. Skráð eigendaskipti fyrstu 158 daga ársins voru 39.663 en voru 44.286 á sama tímabili í fyrra. Þetta þýðir að það hefur orðið -10,4% samdráttur í eigendaskiptum miðað við sama tímabil í fyrra.

Fyrstu 53 daga ársins var aukning í eigendaskiptum sem nam 2,6% miðað við sama tíma í fyrra.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert