Ökumaður á ofsahraða

Maðurinn var nálægt Hvalfjarðargöngum þegar lögreglan á Akranesi veitti honum eftirtekt. stækka

Maðurinn var nálægt Hvalfjarðargöngum þegar lögreglan á Akranesi veitti honum eftirtekt. Mbl/Rax

Lögreglan á Akranesi segir að maður sem reyndi að komast undan lögreglunni í dag hafi ekið á 180 kílómetra hraða í átt til bæjarins. Grunur leikur á að maðurinn hafi kastað fíkniefnum út um glugga bílsins. Þá er hann grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 

Það var um klukkan 13 í dag sem lögreglan á Akranesi ákvað að stöðva bíl sem ekið var í grennd við Hvalfjarðargöngin í átt til Reykjavíkur. Tilgangurinn var að kanna ástand ökumanns. 

Þegar ökumaðurinn varð lögreglunnar var sneri hann bíl sínum við  og ók í átt til Akraness á miklum hraða.  Bílnum var veitt eftirför og náðist hraðamæling í eftirförinni þar sem ekið var með 180 km hraða á klukkustund.

Önnur lögreglubifreið frá Akranesi kom þegar til aðstoðar og bifreið úr Borgarnesi og bifhjól úr höfuðborginni voru  örskammt undan og tóku þátt í að reyna að stöðva akstur mannsins. Þegar sýnt var að ekki næðist að stöðva manninn áður en hann kæmist inn á Akranes dróu lögreglumenn úr ökuhraða en sáu hvar bílnum var ekið inn í bæinn og norður Esjubraut.  Bíllinn fannst svo mannlaus við Ægisbraut örskömmu síðar. 

Til ökumannsins sást í sjónhendingu við hús sem hann var talinn búa í og var ráðist til inngöngu í húsið eftir nokkra stund. Fóru sérsveitarmenn sem komnir voru á vettvang inn í húsið á undan almennum lögreglumönnum.  Var það gert í öryggisskyni en umræddur maður hefur að undanförnu verið í brotastarfssemi og iðulega verið vopnaður við handtökur, að sögn lögreglunnar á Akranesi.

Maðurinn reyndist hins vegar ekki vera í húsinu og var hafin leit að honum í bænum.  Bar sú leit árangur og var maðurinn handtekinn um kl 14:30.

Tíu grömm af fíkniefnum fundust í vegkantinum skammt frá staðnum sem bíllinn fannst og leikur grunar á því að maðurinn hafi kastað þeim út úr bílnum. Maðurinn er til viðbótar við framangreint grunaður um að hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum fíkniefna. Hann gistir nú fangageymslur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »
Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Meintar falsanir til lögreglunnar

19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fótboltaspil
Til sölu er þetta glæsilega fótboltaspil, er eins og nýtt. Verð kr. 10.000 að lá...
2003 Honda Civic EX Great Condition
2003 Honda Civic EX 72,159 km(44,838 miles) Price / Verð: 1.198.000 Arnar ...
DÖMU MOKKASÍUR
Teg. 5011 Mjúkar og þægilegar dömu mokkasíur úr leðri, skinnfóðraðar. - Litur: S...
Barnastóll á hjól
Mjög vandaður. Vottaður fyrir allt að 22 kg. Verð 6000 kr. Uppl. í síma 848...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Starfsmaður í ræstingu
Ræstingar
??????????? ? ???????? ?????????? ??...