Refsing vegna byssueignar milduð

Hæstiréttur hefur frestað refsingu manns, sem var sakfelldur fyrir að hafa undir höndum vopn án þess að  tryggja viðeigandi og áskilda geymslu þeirra. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður dæmt manninn í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi og gert byssurnar upptækar en Hæstiréttur hafnaði upptöku vopnanna.

Byssurnar fundust í húsnæði sem maðurinn réði yfir á Húsavík. Einnig fundust byssur í húsi í Vogum á Vatnsleysuströnd en þeim hafði verið stolið á heimili mannsins í Norðurþingi.

Staðgengill heilbrigðisfulltrúans á Norðausturlandi kom því á framfæri við lögreglu, að íbúi í húsi á Húsavík hefði tilkynnt um vopn, eiturefni og jafnvel sprengiefni sem væru aðgengileg almenningi, þar sem hver sem væri kæmist inn á neðri hæð hússins, þar sem vopnin og efnin væru.

Lögreglan fór inn í húsnæðið, sem var í eigu þrotabús félags á Húsavík. Þar voru eiturefni, skotfæri og skotvopn á víð og dreif. Maðurinn var forsvarsmaður félagsins, sem starfaði við meindýraeyðingu.

Tveimur mánuðum síðar var brotist inn heimili mannsins í Norðurþingi og stolið rifflum, haglabyssu, skammbyssu og startbyssum. Lögregla hafði upp á flestum vopnunum í húsi á Vogum.

Hæstiréttur segir í dómi sínum, að þegar litið sé til þess að vopnin voru tekin í innbroti á heimili mannsins, að hann hafði sérstaka geymslu fyrir vopnin þó að hún væri ekki fullnægjandi, að hann virtist hafa átt stærstan þátt í að lögreglu tókst að upplýsa málið og endurheimta vopnin, og að gögn lágu fyrir um að maðurinn hefði endurbætt aðstöðu á heimili sínu í samráði við lögreglu, sé rétt að fresta refsingu hans í tvö ár. Refsingin fellur niður haldi maðurinn almennt skilorð á þeim tíma. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »
Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Meintar falsanir til lögreglunnar

19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sumarbústaður í sveit www.hrosshagi.com
Til leigu vel búinn bústaður f. 4-6 manns í Biskupstungum. Heitur pottur, gasgri...
Stóll á reiðhjól
Til sölu þessi stóll. Hann er nánast ónotaður . Bleikur hjálmur getur fylgt. Ver...
Skoda Octavia árg. 2005 til sölu
Skoda Octavia, nýskráður í desember 2005 til sölu. Ekinn 117.212 km. Diesel T...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
 
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...