Bjölluat á forsetaskrifstofu

Staðastaður við Sóleyjargötu þar sem skrifstofur forsetaembættisins eru til húsa.
Staðastaður við Sóleyjargötu þar sem skrifstofur forsetaembættisins eru til húsa.

Lögregla er nú að störfum við skrifstofu forseta Íslands við Sóleyjargötu eftir að tilkynnt var um ónæði á skrifstofunni vegna bjölluats. Er talið að útigangsmaður hafi verið þar að verki en hann var horfinn af  vettvangi er lögregla kom á staðinn.

Forsetinn var ekki á staðnum er atvikið átti sér stað og segir starfmaður skrifstofunnar sem blaðamaður mbl.is ræddi við að um minniháttar atvik hafi verið að ræða sem ekki hafi tengst forsetaembættinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert