Vill gögn um matvælafrumvarp
Matvælafrumvarpið var afar umdeild. Ómar Óskarsson
Atli Gíslason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar -græns framboðs og nefndarmaður í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, hefur sent Arnbjörgu Sveinsdóttur, formanni nefndarinnar, Einari K. Guðfinnsyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra, bréf þar sem að krafist er allra gagna er varða samningaviðræður Íslands við Evrópusambandið um innleiðingu matvælalöggjafar ESB hér.
Landbúnaðarráðherra lagði í vor fram frumvarp á Alþingi til lögfestingar matvælalöggjöfinni og þar var m.a. gert ráð fyrir að innflutningur á hráu kjöti yrði heimilaður. Afgreiðslu málsins var frestað til hausts en VG beitti sér mjög gegn frumvarpinu á þeirri forsendu, að ekki hefði farið fram skoðun á því hverjar afleiðingarnar yrðu á því að leyfa innflutning á hráu kjöti fyrir heilsu manna og dýra sem og íslenska matvælaframleiðslu.
Í tilkynningu frá VG segir, að frá því að málið kom til kasta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar þingsins hafi fulltrúi VG í nefndinni krafist fyrrnefndra gagna því ekki hafi komið fram af hálfu stjórnvalda af hverju þau féllu frá undanþágu, sem Ísland hafði um innflutning á hráu kjöti.
„Það er algjör frumforsenda í umfjöllun þessa máls að þessi gögn liggi fyrir og hneyksli að nefndarmönnum hafi ekki fyrir löngu verið afhent þau. Bréf sem þér er hér með sent sem viðhengi er enn ítrekunin á að fá þessi gögn en af augljósum ástæðum er kosið að gera bréfið opinbert," segir í bréfinu sem Atli hefur sent ráðamönnum.
Innlent »
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 19. júní 2009, Innlent Heftir innflutning á hráu kjöti
- Laugardagur, 12. júlí 2008, Innlent Óskiljanleg töf á afhendingu gagna
- Þriðjudagur, 23. júní 2009, Innlent Þriðja útgáfa matvælafrumvarps
- Laugardagur, 7. júní 2008, Innlent Breytingar á matvælalögum í þágu bænda
- Mánudagur, 5. maí 2008, Innlent Frestur til athugasemda ekki framlengdur
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































