Vitorðsmenn hér á landi?

Lögreglan sýndi fíkniefnin í gær. stækka

Lögreglan sýndi fíkniefnin í gær. mbl.is/Júlíus

Fíkniefnin sem fundust í húsbíl um borð í Norrænu á þriðjudaginn var eru mesta magn fíkniefna sem fundist hefur á Íslandi í einu.

Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu lögreglu og tollyfirvalda voru 190 kíló af hassi í bílnum. Auk þess fundust 1,5 kíló af marijúana og eitt kíló af kókaíni við leitina.

Rannsókn málsins hefur verið færð í hendur fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var unnið langt fram á aðfaranótt fimmtudags við rannsókn málsins.

Fíkniefnin fundust í húsbíl um borð í ferjunni við tolleftirlit. Sjötugur hollenskur karlmaður sem kom á bílnum til landsins var handtekinn. Bíllinn var svo fluttur til Reykjavíkur í gær og er hann í vörslu embættis tollstjórans í Reykjavík. Að sögn Harðar Davíðs Harðarsonar, deildarstjóra hjá tollinum, stóð ítarleg leit yfir í bílnum í gær. „Við vonumst til að klára leitina í dag [í gær]. Þetta er stór bíll og það er mikið pláss í honum þannig að það tekur drjúgan tíma að leita af sér allan grun.“

Lögreglan verst frétta af málinu. Hörður Jóhannesson, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsóknina á frumstigi.

„Þetta er gríðarlegt magn fíkniefna sem þarna fannst og það blasir alveg við að maðurinn hefur ekki ætlað sér að koma þessum efnum sjálfur í sölu hér á landi.“

Hörður segir rannsókn málsins nú beinast að því að finna vitorðsmann eða vitorðsmenn Hollendingsins hér á landi. „Ég get ekkert gefið upp um það á þessari stundu hvernig málinu miðar. Við erum bara að skoða alla þræði málsins.“

Maðurinn líklega komið áður

Heimildir 24 stunda herma að lögreglan hafi fengið ábendingu um að efnin væru um borð í ferjunni og sérstaklega hafi sú ábending tengst Hollendingnum sem handtekinn var. Talið er að hann hafi áður komið til landsins en það hefur ekki fengist staðfest. Hörður segir ljóst að fíkniefnum hafi oft áður verið smyglað til landsins með Norrænu.

„Ég get ekkert sagt um það hvort þessi maður hefur áður reynt að koma fíkniefnum til landsins með þessum hætti.“ 

Hollendingurinn var fluttur til Reykjavíkur á miðvikudagskvöld.

Hollendingurinn var fluttur til Reykjavíkur á miðvikudagskvöld. mbl.is/Golli

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »
Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Meintar falsanir til lögreglunnar

19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Dekk Land Cruiser 120 Michelin heilsárs/sumar 265/65 r17
dekk undan 120 bíl, dekkin eru slitin og vel með farin.. Verð 40 þús. Uppl. í...
KAUPUM GULL
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfurborðb...
VW Passat 2,0 Comfortline 5.2003
Til sölu VW Passat 2,0 Comfortline 5.2003 ekinn 147 þ.km Sjálfskiptur nýskoðaður...
Óska eftir Dell 2950 þjóni ódýrt
Óska eftir Dell 2950 netþjóni eða sambærilegu. vinsamlegast sendi upplýsingar á ...
 
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...