Eini kosturinn í stöðunni að aflífa dýrið

Ísbjörninn á Hrauni stækka

Ísbjörninn á Hrauni mbl.is/Skapti

Morgunblaðið Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is
Hvítabjörninn sem gekk á land við Hraun á Skaga í fyrradag var drepinn um kvöldmatarleytið í gær. Til stóð að svæfa dýrið og flytja það á ný til heimkynna þess við Grænland, en styggð kom að birninum þegar bílar nálguðust hann löturhægt, hann stefndi í sjó fram og stjórnendur á vettvangi töldu ekki annað forsvaranlegt en skjóta dýrið til ólífis. Danski sérfræðingurinn, Carsten Grøndahl, sem kom til landsins í gær til þess að skjóta deyfilyfi í dýrið, komst aldrei nógu nálægt því og kvaðst í samtali við Morgunblaðið algjörlega sammála því að eini kosturinn í stöðunni hefði verið að aflífa dýrið.

Ástand bjarndýrsins var ekki gott. Það kom í ljós við skoðun eftir að það var drepið. Þorsteinn Sæmundsson, forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra, sagði að það hefði verið mjög horað og með sár í bógkrikum sem benti til þess að það hefði synt mikið. „Það hefði jafnvel getað riðið dýrinu að fullu ef við hefðum svæft það. Það er mikill kraftur í þessum dýrum og björninn hreyfði sig hratt og til þess að afstýra hættu urðum við því miður að gera það sem við gerðum.“

Dýrið hélt sig nánast á sama stað frá því fyrst varð vart við það í fyrradag þar til það var skotið í gær; í æðarvarpinu á milli bæjanna Hrauns I og II. Þess var freistað að nálgast dýrið á tveimur bílum undir kvöldmat í gær en þegar annar þeirra var kominn nokkuð nálægt kom styggð að dýrinu og það fór út í vatn sem er á milli bæjanna.

Tók á sprett niður í fjöru

Þegar dýrið fór út í vatnið var bílnum, sem Daninn var í með byssuna, ekið að bakkanum þar sem það virtist ætla að koma á land, en þá sneri dýrið við og fór annars staðar upp úr, tók þar á sprett og niður í fjörukambinn. Þegar það stefndi augljóslega á haf út var ákveðið að fella dýrið. „Ef við hefðum misst björninn út í öldurótið hefðum við týnt honum; það var engin leið að fylgja honum eftir. Því miður,“ sagði Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, við Morgunblaðið.

Carsten hinn danski, sem var við öllu búinn með byssuna í bílnum, sagði það afar leiðinlegt að ekki skyldi takast að ná dýrinu lifandi en „yfirlögregluþjónninn átti ekki annarra kosta völ úr því sem komið var. Þetta var hárrétt ákvörðun“.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra segist aðspurð telja allt umstangið þess virði. „Við höfum skyldum að gegna gagnvart þessum dýrum. Þetta eru friðuð dýr, þau má fella ef af þeim skapast hætta gagnvart fólki og búfénaði, samkvæmt lögum, og við vinnum eftir þeim. Það hefði verið þarft og gott að koma dýrinu til heimkynna sinna ef það hefði verið hægt. Það reyndum við en vissum allan tímann að aðgerð af þessu tagi er mjög flókin og ef eitthvað fer úrskeiðis er henni einfaldlega lokið.“

Þórunn sagði það inni í myndinni að Íslendingar eignuðust búr eins og það sem flutt var inn en lagði einnig ríkulega áherslu á að aðstæður í hafinu yrðu skoðaðar til að athuga hvort von væri á fleiri björnum. „Við þurfum að búa okkur undir það.“ skapti@mbl.is

Heimasætan mun líta í kringum sig næstu daga

„Mér líður svolítið illa yfir þessu, þar sem mennirnir voru komnir svo langt með þetta og voru alveg að ná birninum,“ segir Karen Helga Steinsdóttir, heimasæta á Hrauni II, en hún horfði á aðgerðirnar út um stofugluggann. Hún lýsir víginu svo: „Hann hitti björninn beint í hálsinn eða bringuna þannig að dýrið drapst strax, en til öryggis skaut hann tvisvar.“

Karen Helga varð fyrst vör við björninn þegar hún elti tíkina sína, Týru, út í æðarvarpið. Þegar hún varð vör við hvítabjörninn hljóp hún að húsinu dauðhrædd. Karen segist þó ekki hrædd við að fara aftur út að leika sér. „Nei, ég held að það komi ekki annar hér. Pabbi vonar líka að næsti komi annars staðar. En ég mun líta í kringum mig næstu daga.“

Þegar Karen hljóp aftur að bænum skildi hún hundinn eftir og vinnumaðurinn á bænum, Grænlendingurinn Ísak Christiansen, hljóp út í æðarvarpið í fyrradag til að ná í hann. „Jú, ég verð að viðurkenna að ég var svolítið hræddur,“ sagði hann við Morgunblaðið. „Enda var ég ekki nema 50 metra frá birninum þegar ég fann hundinn.“

Ísak er í námi í landbúnaðarskóla á Grænlandi og dvölin á Hrauni er hluti námsins. Það er kannski ótrúlegt en hann hefur aldrei áður séð ísbjörn áður!

Varpið í ótrúlega góðu standi

Karen Helga fór út í æðarvarp strax í gær þegar búið var að fjarlægja björninn. Hún sagðist ekki hafa fundið neitt hreiður sem búið var að tína úr en foreldrar hennar hefðu fundið nokkur.

Aðspurður segir Steinn Rögnvaldsson, bóndi á Hrauni II, að afleiðingarnar verði ekki að fullu ljósar fyrr en næsta vor „en ég fór og skoðaði áðan og við fyrstu sýn virtist mér ótrúlega gott stand á þessu. Bjarndýrið var líka svo rólegt og þegar það hreyfði sig, þá fór það afar hægt um. Það virðist því ekki mikið um að fuglar hafi yfirgefið hreiður og björninn hefur ekki tekið mikið, þó eitthvað“.

Steinn segist finna fyrir ákveðnum létti yfir að nú sé þessu ástandi lokið og hefðbundið heimilislíf taki við.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »
Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Meintar falsanir til lögreglunnar

19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Flott sjónvarp til sölu!
29 tommu túbu sjónvarp frá Sony til sölu. Það er 8 ára gamalt og í góðu lagi. T...
Barstólar
Til sölu 2 nýlegir barstólar. Tilboð óskast. Uppl. í síma 863-7879 eftir kl. ...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
NICOLAI bifreiðastillingar, Faxafeni 12, sími 588 2455. Véla- og hjólastillingar...
Heimagisting Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á góðum stað á Akureyri. Einungis er um að ræða g...
 
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Hjálpræðisherinn samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Sigurður...