Ferðaþjónustufyrirtæki ósátt við fyrirhuguð verkföll

Samtök ferðaþjónustunnar lýsa yfir miklum áhyggjum vegna fyrirhugaðra vinnustöðvana flugumferðarstjóra sem munu raska flugi umtalsvert, bæði innanlands sem utan með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.  Ferðaþjónustan er mjög viðkvæm fyrir slíkum truflunum og eru þær slæmar fyrir ímynd og orðspor Íslands sem ferðamannalands, að því er segir í tilkynningu frá SAF. 

„Ferðamenn forðast almennt svæði þar sem verkföll og vinnustöðvanir eru fyrirhugaðar.  Þetta er alvarleg staða fyrir íslenska ferðaþjónustu á sama tíma og rekstrarumhverfi fyrirtækjanna hefur stórversnað vegna olíuverðshækkana og erfiðs efnahagsástands hérlendis sem erlendis.  Samtökin hvetja samningsaðila til að gera sitt ítrasta til að ná samningum áður en í óefni er komið," að því er segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert