Fimmtán mánuðir fyrir kynferðisbrot gegn nemanda
Hæstiréttur staðfesti í dag fimmtán mánaða fangelsisdóm héraðsdóms Norðurlands vestra yfir grunnskólakennara fyrir kynferðisbrot gegn unglingsstúlku sem var nemandi við grunnskólann. Hins vegar var dómurinn skilorðsbundinn í héraðsdómi en ekki í Hæstarétti. Maðurinn var í héraðsdómi einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 500 þúsund krónur í bætur og staðfesti Hæstiréttur þann úrskurð.
Í niðurstöðu Hæstaréttar kemur fram að brot kennarans séu alvarleg og er refsing
hans, fangelsi í 15 mánuði, hæfilega ákveðin í héraðsdómi. Hann á sér engar
málsbætur og eru ekki forsendur fyrir því að binda refsinguna skilorði.
Samband kennarans og stúlkunnar stóð frá árinu 2003, þegar stúlkan var 13 ára og til ársins 2006. Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að með því að taka upp kynferðislegt samband við nemanda sinn, sem varði í langan tíma, hafi maðurinn framið alvarlegt trúnaðarbrot, sem þung refsing liggi við að lögum.
Manninum var í héraðsdómi hins vegar virt til mikilla málsbóta, að gagnkvæmt ástarsamband hafi verið á milli hans og stúlkunnar og hann hafi lýst því, að fyrir sitt leyti hefði hann viljað halda því áfram og gera það opinbert. Því ákvað dómurinn að skilorðsbinda refsinguna að fullu.
Fram kemur í dómnum, að stúlkan bar að á tímabili hafi hún talið sig vera ástfangna af manninum þótt hún hafi varla vitað hvað var að gerast, enda hafi hlutirnir gerst hratt á þessum tíma. En nú, þegar hún hafi fengið utanaðkomandi aðstoð, viti hún að þetta hafi ekki verið nein ást.
Dómurinn sagði ljóst, að samband stúlkunnar og kennarans hafi haft áhrif á tilfinningalega líðan hennar og valdið henni félagslegum erfiðleikum. Því væri maðurinn bótaskyldur gagnvart henni.
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 11. desember 2007, Innlent Kennari dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn nemanda
- Fimmtudagur, 26. mars 2009, Innlent Þarf að greiða kennara bætur
- Fimmtudagur, 11. desember 2008, Innlent 2 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
- Föstudagur, 14. mars 2008, Innlent Dæmd til að greiða kennara 10 milljónir í bætur
- Fimmtudagur, 31. janúar 2008, Innlent Fimm ára fangelsi fyrir nauðgun
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“




































