Ráðuneytið greiðir 245 þúsund fyrir leiguflug á Sauðárkrók
Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, var á Skaga þegar ísbjörninn var drepinn. mbl.is/Skapti
Vegna misvísandi frétta um ferðalög umhverfisráðherra í tengslum við björgun hvítabjarnarins á Skaga vill umhverfisráðuneytið koma því á framfæri að Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra fór til útlanda í einkaerindum um liðna helgi. Hún kom til landsins með áætlunarflugi en ráðuneytið greiddi 245.000 krónur fyrir leiguflug með sjö farþega til Sauðárkróks á þjóðhátíðardaginn.
„Á mánudag hafði ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins samband við umhverfisráðherra og tilkynnti honum um landtöku hvítabjarnar í Skagafirði. Umhverfisráðherra var í stöðugu sambandi við ráðuneytið og Umhverfisstofnun í kjölfarið og hafði meðal annars milligöngu um að koma á samstarfi við dýragarðinn í Kaupmannahöfn um björgun hvítabjarnarins.
Umhverfisráðherra kom til Íslands síðdegis þriðjudaginn 17. júní með áætlunarflugi eins og ráð hafði verið fyrir gert. Umhverfisráðuneytið leigði flugvél af flugfélaginu Ernir til að fljúga með umhverfisráðherra og viðkomandi starfsfólk umhverfisráðuneytisins og Náttúrufræðistofnunar Íslands frá Keflavík til Sauðárkróks.
Starfsfólk ráðuneytisins sá m.a. um samskipti við lögreglu, Landhelgisgæslu og fjölmiðla og samskipti við grænlensku heimastjórnina vegna óska um að fá að flytja hvítabjörninn þangað.
Starfsfólk Náttúrufræðistofnunar Íslands þurfti að vera á vettvangi ef til þess kæmi að fella þyrfti björninn. Umhverfisráðuneytið greiðir 245.000 kr. fyrir leiguflug með sjö farþega. Flogið var með áætlunarflugi til baka um kvöldið," að því er segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu.
Bloggað um fréttina
-
Torfi Kristján Stefánsson Ráðherra segi af sér -
Guðrún Magnea Helgadóttir Að vera starfi sínu vaxin -
Hvíti Riddarinn Hálf sagan sögð? Erum við fávitaþjóð? -
Snjólaug A. Sigurfinnsdóttir Á maður að hlæja eða gráta -
Jenný Anna Baldursdóttir Þjóð í móðursýkiskasti -
Markús frá Djúpalæk Þurfti umhverfisráðherra og hinir sex að vera þarna? -
Sigurður Þórðarson Umhverfisráðherra fjármagnar lögbrot
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 3. júní 2008, Innlent Reynt að koma í veg fyrir að fella þurfi næsta hvítabjörn
- Miðvikudagur, 12. september 2007, Innlent Áfram sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum
- Föstudagur, 27. júní 2008, Innlent Blaðamannafélagið ítrekar mótmæli
- Þriðjudagur, 14. ágúst 2007, Innlent Unnið að mati á tilnefningu Surtseyjar á Heimsminjaskrá UNESCO
- Miðvikudagur, 19. desember 2007, Innlent Tekið verði tillit til landfræðilegrar sérstöðu Íslands
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“





































