Hver á skóinn?

Starfsmaður hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík hafði samband við mbl.is og vildi koma því á framfæri að hjá embættinu væri skór sem einhver týndi á bílastæðinu við Skógarhlíð 6.

Um er að ræða sandala á hægri fót í stærð 23. Er skórinn hvítur á lit með bleikri rós. Vilja starfsmenn embættisins að litla stúlkan sem glataði skónum fái hann aftur og er hægt að nálgast hann á skrifstofu sýslumannsembættisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert