Ódýrara og hagkvæmara að byggja á Litla-Hrauni
Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að jafnvel þó hentug lóð fengist á Hólmsheiði eða annars staðar á höfuðborgarsvæðinu væri óskynsamlegt að reisa þar stórt fangelsi, líkt og stefnt hefur verið að um árabil. Mun betra sé að stækka fangelsið að Litla-Hrauni og reisa gæsluvarðhalds- og skammvistunarfangelsi í tengslum við nýjar aðalstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er mikil stefnubreyting og hún hefur ekki gerst á löngum tíma. Í ræðu sem Björn flutti á Kvíabryggju 3. október 2007 kom t.a.m. fram að enn væri stefnt að byggingu fangelsis með klefa fyrir 64 fanga á Hólmsheiði. Það var ekki fyrr en í janúar á þessu ári sem Björn sagði opinberlega að vafi léki á því að fangelsið myndi rísa.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Björn að þegar hann flutti ræðuna á Kvíabryggju hefðu starfsmenn ráðuneytisins verið byrjaðir að velta því fyrir sér breytingum á áformum um fangelsið á Hólmsheiði. Í ljós hefði komið að lóðin sem Reykjavíkurborg skipulagði fyrir fangelsið hentaði ekki og umræða um innanlandsflugvöll á heiðinni hefði sett lóðarmálin í enn meira uppnám.
Lóðarmálin réðu þó ekki baggamuninn, að sögn Björns. Margt mælti með því að hætta við að að reisa stórt öryggisgæslufangelsi á höfuðborgarsvæðinu en reisa í staðinn gæsluvarðhalds- og öryggisgæslufangelsi í tengslum við nýja lögreglustöð og jafnframt stækka fangelsið á Litla-Hrauni. Þessi kostur ætti í fyrsta lagi að verða mun ódýrari og hagkvæmari. Þótt enn hefði ekki verið reiknað út hver stofn- og rekstrarkostnaður yrði við stækkun Litla-Hrauns og byggingu gæsluvarðhalds- og skammvistunarfangelsis, segði heilbrigð skynsemi að kostnaðurinn yrði minni. Ríkið ætti nú þegar lóð á Litla-Hrauni og mun hagkvæmara væri að stækka núverandi fangelsi en að reisa nýtt hús á nýjum stað. Þá myndi aðstaða lögreglustöðvarinnar og fangelsisins á höfuðborgarsvæðinu að einhverju leyti verða samnýtt. Þá væri reynslan af Litla-Hrauni einstaklega góð og á svæðinu væri bæði mikil sérþekking og hefð fyrir rekstri fangelsis.





































