Heyrnarlausir fá heimilissíma
Elsa Guðbjörg Björnsdóttir (t.v.) og Svava Jóhannesdóttir hafa ekki prófað nýja símann en telja hann framtíðartæki.
Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is
Þriðja kynslóð farsímakerfisins, sem var fyrst tekin til notkunar af Símanum í september 2007, boðaði mikla samskiptabyltingu fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta með hjálp myndsímtala. 3G-símarnir svokölluðu hafa síðan sannað sig sem ný vídd í fjarskiptum fyrir heyrnarlausa, en þó eru enn ýmsir vankantar á tækninni, svo sem þröngt sjónsvið og takmörkuð myndgæði. Félag heyrnarlausra vinnur nú að því, í samstarfi við Höskuld Darra Ellertsson hjá Frumkvöðlasetri Innovit, að koma á legg nýrri samskiptaleið sem ætti enn að bæta úr þjónustu við heyrnarlausa.
Um er að ræða svokallaðan VT82-myndsíma (Vision Tech) sem tengist netinu og notar IP-samband sem flutningsleið. Þetta er ekki farsími heldur staðbundinn, og mætti því segja að með honum eignist heyrnarlausir í fyrsta skipti sinn heimilissíma. Vision Tech-símarnir eru sænskir og hafa verið mjög vinsælir meðal heyrnarlausra á Norðurlöndunum undanfarin ár.
Helsti kostur þessa nýja síma umfram 3G-símana er að sögn Höskuldar sá að hann er hannaður sérstaklega með þarfir heyrnarlausra í huga og uppfyllir staðla fyrir túlkaþjónustu, en þar skiptir myndbreiddin mestu máli, fremur en hljóðflutningur. VT82-símarnir hafa almennt stærri skjá með betri myndgæðum og upplausn heldur en farsímar eða allt að 352x288 pixla. Þannig verður meira aðlaðandi að spjalla í rólegheitum í símann með táknmáli, í stað þess að nota hann aðeins fyrir stutt grundvallarsamskipti.
Höskuldur rekur sjálfur miðlæga SIP-símstöð fyrir myndsímtölin, en ætlunin er að bjóða þjónustuna án mínútu- eða upphafsgjalds, heldur geti notendur hringt ótakmarkað gegn vægu mánaðargjaldi. Öll helsta tæknivinna hefur þegar verið unnin og kerfið í raun tilbúið til notkunar, svo fjármagn er það eina sem upp á vantar. Að sögn Daða Hreinssonar, framkvæmdastjóra Félags heyrnarlausra, hefur hugmyndin verið kynnt fyrir samgönguráðuneytinu og Póst- og fjarskiptastofnun, með von um styrk úr fjarskiptasjóði.
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hefur samþykkt að VT82 flokkist sem nauðsynlegt hjálpartæki og er niðurgreiðsla þjónustunnar því mikið hagsmunamál fyrir Félag heyrnarlausra enda kostnaðarsamt að setja upp viðamikið kerfi sniðið að svo smáum markhópi sem heyrnarlausir eru.
Að sögn Höskuldar hafa þó fleiri hópar sýnt símkerfinu áhuga, s.s. Félagsþjónustan í Reykjavík og Þroskahjálp. Fyrsta markmiðið sé þó að koma símunum inn á heimili heyrnarlausra, en eftir það sé ekkert því til fyrirstöðu að þeir fari á almennan markað, eins og þegar hefur gerst víða erlendis.





































