Hraðakstur á Suðurnesjum

Margir gáfu of hressilega í á Suðurnesjum í dag.
Margir gáfu of hressilega í á Suðurnesjum í dag. mbl.is/Július

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði sex ökumenn fyrir hraðakstur í dag. Varðstjóri lögreglunnar telur að veðurblíðunni sé um að kenna en sá sem ók hraðast mældist á 150 km hraða þar sem 90 km hámarkshraði er. Annar mældist á 144 km hraða við sömu aðstæður.

Einn ökumaður var stöðvaður á Suðurnesjum í dag grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert