Hraðakstur í þéttbýli
Undanfarna viku hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgst með hraða ökumanna í Hlíða- og Teigahverfi í Reykjavík og hefur hátt hlutfall þeirra mælst á of miklum hraða í þessum íbúðarhverfum.
Í tilkynningu frá lögregluembættinu segir:
HRAÐAKSTUR Í LÖNGUHLÍÐ
Brot 15 ökumanna voru mynduð í Lönguhlíð í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lönguhlíð í suðurátt, að Drápuhlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 162 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tveir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 76.
HRAÐAKSTUR Á HÁTEIGSVEGI
Brot 52 ökumanna voru mynduð á Háteigsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háteigsveg í vesturátt, við Vatnsholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 152 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.
HRAÐAKSTUR Í HAMRAHLÍÐ
Brot 32 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð sl. föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í austurátt, við Hamrahlíðaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 85 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.
HRAÐAKSTUR Í STAKKAHLÍÐ
Brot 41 ökumanns var myndað í Stakkahlíð sl. fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Stakkahlíð í norðurátt, við Úthlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 87 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62.
HRAÐAKSTUR Á GULLTEIG
Brot 14 ökumanna voru mynduð á Gullteig sl. miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt, að Silfurteig. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 57 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.





































