Með mestu uppsögnum í sögu Icelandair

Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir fregnir um uppsagnir á 88 flugmönnum hjá Icelandair vera einhver grimmustu tíðindin sem borist hafi í sögu félagsins.

Auk þeirra 64 flugmanna sem fá uppsagnarbréf núna um mánaðamótin verður 24 sem ráðnir voru í sumar sagt upp, segir formaðurinn, Jóhannes Bjarni Guðmundsson. 

Framkvæmdastjóri Icelandair, Birkir Hólm Guðnason, segir uppsagnirnar sem félagið greindi frá í morgun vera einhverjar þær mestu í sögu félagsins.

Versnandi horfum í rekstrinum verði því miður ekki mætt nema með beinum niðurskurði. 

Forráðamenn Icelandair funduðu með flugfreyjum og flugmönnum félagsins í morgun, þar sem rætt var um uppsagnirnar sem félagið hefur tilkynnt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert