Skorið á hjólbarða í Hafnarfirði

Skorið var á hjólabarða á þremur bifreiðum.
Skorið var á hjólabarða á þremur bifreiðum. mbl.is/Július

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk um helgina tilkynningu um að skorið hefði verið á hjólbarða á þremur bifreiðum í Hafnarfirði. Tilvikin voru í sama hverfi og greinilegt að sami maður var þar á ferð.

Aðeins var skorið á einn hjólbarða á hverjum bíl og líklegt talið að notast hafi verið við hníf. Lögregla leitar upplýsinga um grunsamlegar mannaferðir í Hvammahverfi. Ef einhver hefur upplýsingar sem nýtast við rannsókn málsins er sá hinn sami beðinn að hafa samband á svæðisstöðina í Hafnarfirði, í síma 444-1140.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert