Sturla fær aðstoðarmann

Sigríður Finsen hefur tekið við starfi aðstoðarmanns Sturlu Böðvarssonar alþingismanns og forseta Alþingis. Starfstöð hennar er í Grundarfirði, samkvæmt tilkynningu.

Sigríður hefur búið í Grundarfirði undanfarin 16 ár,  en er fædd og uppalin í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1978, BAhon prófi í hagfræði frá háskólanum í York í Englandi og MSC prófi í borga- og byggðafræðum frá London School of Economics 1985.

Sigríður hefur setið  í bæjarstjórn Grundarfjarðar undanfarin 10 ár,  þar af sl. 8 ár sem forseti  bæjarstjórnar og er nú um þessar mundir formaður Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert