Stefnir í verkfall

Samninganefnd Félags flugumferðarstjóra er á samningafundi hjá ríkissáttasemjara en fundurinn hófst klukkan 10 í morgun. Að sögn Lofts Jóhannessonar, formanns Félags íslenskra flugumferðastjóra, er óvíst hve lengi fundurinn mun standa. Að öllu óbreyttu hefst verkfall flugumferðarstjóra klukkan sjö í fyrramálið.

Að sögn Lofts Jóhannessonar, formanns Félags íslenskra flugumferðastjóra, snýst deilan ekki um launakjör, heldur um vinnufyrirkomulag. Flugumferðarstjórum hefur lengi gramist sú mikla yfirvinna sem þeir þurfa að vinna og vilja minnka hana með breyttu skipulagi.

Ekki náðist tal af ríkissáttasemjara. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert