Tilkynning frá Iceland Express vegna fyrirhugaðs verkfalls flugumferðarstjóra

Vegna væntanlegs verkfalls flugumferðarstjóra hvetur Iceland Express viðskiptavini sína sem eiga bókað flug í fyrramálið, föstudaginn 27. júní til að fylgjast vel með heimasíðu Iceland Express, icelandexpress.is eða öðrum miðlum sem veita upplýsingar um komur- og brottfarir frá Keflavíkurflugvelli. Mun Iceland Express uppfæra heimasíðu sína með nýjustu upplýsingum hverju sinni.

Iceland Express harmar mjög fyrirhugað verkfall, en ef til þess kemur er alls óvíst hvaða áhrif það mun hafa á áætlun félagsins föstudaginn 27. júní. Þó hefur verið ákveðið að flýta flugi félagisins til Barcelona sem fara átti í loftið kl. 07.00. Nýr brottfarartími er kl. 06.20 eða 40 mínútum fyrr en áætlað verkfall á að hefjast.

Iceland Express mun leita allra leiða til þess að lágmarka óþægindi viðskiptavina af boðuðu verkfalli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert