Hættuástand í Grímsey

Morgunblaðið Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is
Maðurinn sem sérsveitarmenn lögreglunnar handtóku í Grímsey sl. laugardag var yfirheyrður af lögreglunni á Akureyri í gær. Maðurinn, sem er rétt rúmlega tvítugur, hafði haft í hótunum við fólk á staðnum og gert misheppnaða tilraun til þess að stinga mann með hnífi sem hann varð sér úti um í fiskvinnsluhúsnæði á staðnum. Á næstunni verða teknar skýrslur af vitnum og í kjölfarið tekin ákvörðun um hvort gefin verður út ákæra.

„Þetta er ekki stórvægilegt brot. Hann meiðir engan þótt þarna hafi auðvitað skapast alvarlegt ástand,“ segir Jóhann Olsen, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri. Engin löggæsla er í Grímsey að staðaldri. Maðurinn var ekki yfirheyrður strax þar sem hann var ölvaður og líklega undir áhrifum fíkniefna. Gisti hann fangageymslur aðfaranótt sunnudags en nýtur núna aðstoðar fagfólks sem reynir að „koma honum á réttan kjöl.“

Var einn á ferð í Grímsey

Áður en sérsveitarmenn lögreglunnar handtóku manninn hafði óbreyttum borgara í Grímsey tekist að róa hann mikið niður og ræða við hann. Var maðurinn því „þokkalega rólegur“ og hættuástand yfirstaðið þegar sérsveitin kom á vettvang, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Maðurinn, sem var einn á ferð í Grímsey, var dæmdur í 20 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra í upphafi þessa mánaðar fyrir ýmis hegningarlagabrot, þar á meðal þrjár hnífstungur, líkamsárás og fíkniefnabrot. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri er „mikil gremja í fólki“ fyrir norðan yfir því að maðurinn gangi laus og hafi embættinu borist mörg símtöl þess efnis. Bæði sakborningur og ákæruvald hafa lögum samkvæmt áfrýjunarfrest sem lengir þann tíma sem líður að fullnustu dómsins.

Flugvél með sjúkraflutningamönnum var aftur send til Grímseyjar seinna sama kvöld vegna annars ungs manns sem var þar í annarlegu ástandi og voru nokkrir sérsveitarmenn þá einnig með í för en ekkert hættuástand skapaðist. Var maðurinn veikur vegna áfengis- og vímuefnaneyslu og þurfti að komast á sjúkrahús til aðhlynningar. Mennirnir tveir þekkjast en ekki er vitað um frekari tengsl á milli þeirra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BÆKUR ,TÍMARIT,MATREIÐSLUBÆKUR OG LP. PLÖTUR TIL SÖLU
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?badvid=28470738&showAdvid=284707...
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
LÓÐ TIL SÖLU Á BESTA STAÐ Í INNBÆNUM
Lóð til sölu Á besta stað í innbænum á...
Kvistir
Kvistir Sérsmíðaðir kvistir á þök. Uppsetning tekur ...
 
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...