Fremur þungbúið á landinu

Veðurstofan spáir austlægri átt, víða 8-13 m/s á landinu í dag. Skýjað verður og súld eða rigning með köflum sunnan- og austanlands en annars þurrt að mestu og sums staðar bjartviðri norðanlands. Síðdegis dregur úr vindi og á morgun verður fremur hæg austlæg átt með vætu austantil á landinu, en þurrt og bjart á köflum vestantil. Hiti verður 10 til 20 stig, hlýjast norðantil.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert