Lélegustu úthafskarfaverðtíðinni lokið

Helga María AK stækka

Helga María AK Af vef HB Granda

Lélegustu úthafskarfavertíð skipa HB Granda frá upphafi veiðanna er lokið. Fjögur skip stunduðu veiðarnar að þessu sinni og samkvæmt upplýsingum Birkis Hrannars Hjálmarssonar, rekstrarstjóra togara félagsins, er aflasamdrátturinn milli ára um 45%. Þetta kemur fram á vef HB Granda.

Að sögn Birkis fóru Örfirisey RE, Þerney RE, Helga María AK og Venus HF til úthafskarfaveiða í maí sl. Skipin komu í land fyrir sjómannadaginn en eftir hann fóru þrjú skipanna í úthafið að nýju. Örfirisey RE fór þá til veiða á heimamiðum. Um var að ræða prufutúr þar sem reyndar voru veiðar með tveimur trollum samtímis.

,,Úthafskarfavertíðin nú var ákaflega rýr. Heildaraflinn var á milli 3.100 og 3.200 tonn en til samanburðar má nefna að í fyrra var afli skipanna 5.770 tonn,“ segir Birkir, í frétt á vef HB Granda, en hann upplýsir að fimmti frystitogari félagsins, Höfrungur III AK, hafi það sem af er árinu verið á grálúðuveiðum og hafi þær veiðar gengið þokkalega.

,,Útgerð frystitogaranna gengur orðið út á það að flýja þorskinn. Við gerðum reyndar ráðstafanir til að eiga töluvert af þorskkvótanum eftir fyrir sumarið en þrátt fyrir það er okkur vandi á höndum vegna þess hve mikið er af þorski þar sem reynt er að veiða aðrar tegundir,“ segir Birkir en að hans sögn eru það þorskurinn og hátt olíuverð sem eru helsti vandi togaraútgerðarinnar um þessar mundir. Ekki dugi þó að væla yfir því. Þorskkvótinn hljóti að aukast á komandi árum og vonandi lækki olíuverðið frá því sem nú er.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Raflagnaefni
Eftirstöðvar af rafmagnsvörulager til sölu. Vír, rör, töfluefni, Ticino efni, H...
Gallerí Voff -Hundaskóli sem skilar árangri í 20 ár
Gallerí Voff er eini hundaskólinn á landinu sem er viðurkenndur af umhverfisstof...
HONDA CR-V STW 4WD
Honda cr-w 1998. Ekinn 222 þús.sjálfskiptur. Dráttarkúla.Topplúga. Nýr geymir. N...
Garðuðun Meindyraeyðir
Uða garða gegn maðki og lus eyði Köngulom af husum geitungum flo öll almenn og s...
 
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...