Mælt með Önnu Kristinsdóttur í starf mannréttindastjóra
Að tillögu ráðgjafanefndar verður lagt til á næsta fundi borgarráðs að Anna Kristinsdóttir, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, verði ráðin mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar. Alls sóttu 23 um embættið.
Ráðgjafanefnd um ráðninguna boðaði sex af umsækjendunum í viðtöl. Það er samdóma álit nefndarinnar sem fór yfir umsóknir og tók viðtölin að Anna Kristinsdóttir fullnægi best þeim kröfum sem gerðar eru samkvæmt auglýsingu um starf mannréttindastjóra, að því er segir í tilkynningu.
„Anna hefur aflað sér víðtækrar reynslu og þekkingar á sviði jafnréttis- og mannréttindamála, bæði sem borgarfulltrúi í Reykjavík og sem þátttakandi í frjálsum félagasamtökum. Hún sat í jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar árin 1998 – 2002, í Jafnréttisráði frá 2004 – 2007 og í Svæðisráði málefna fatlaðra í Reykjavík frá 2003.
Anna hefur á undanförnum árum starfað með frjálsum félagasamtökum þar sem mannréttindi hafa skipað stóran sess, meðal annars verið í Landsstjórn/Framkvæmdaráði Þroskahjálpar frá 2001 og formaður foreldrasamtaka fatlaðra frá 2001-2004.
Hún á að baki stjórnunarreynslu, meðal annars sem skrifstofustjóri. Hún stýrði og var formaður Íþrótta- og tómstundaráðs árin 2002 – 2006, formaður Framkvæmdaráðs frá 2005 – 2006 og formaður hinna ýmsu nefnda á vegum Reykjavíkurborgar svo sem Bláfjallanefndar, Þjóðhátíðarnefndar og Afreksmannasjóðs Reykjavíkur.
Eftir að hún lauk störfum sem borgarfulltrúi, tók hún að sér verkefnastjórn Alþjóðaleika ungmenna árin 2006 – 2007. Hún hefur auk þess gegnt fjölda trúnaðarstarfa, svo sem í Áfengis- og vímuvarnarráði frá 2004, í stjórn Félagsbústaða 2006 – 2007, í landsstjórn Neytendasamtakanna frá 2002 – 2004, í stjórn Heimilis og skóla frá 2006 – 2008, í stjórn Evrópusamtakanna frá 2007 og verið formaður íbúasamtaka Bústaðahverfis frá 2007," að því er segir í tilkynningu.
Anna lauk BA - gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2006. Hún vinnur nú að lokaritgerð í meistaranámi í opinberri stjórnsýslu frá HÍ.
Maki Önnu er Gunnar Örn Harðarson, framkvæmdastjóri, og eiga þau þrjú börn.
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. júlí 2008, Innlent Anna ráðin mannréttindastjóri
- Þriðjudagur, 2. september 2008, Innlent Vill láta birta tölur um kostnað vegna borgarfulltrúa
- Föstudagur, 15. ágúst 2008, Innlent Tónlistarhátíð unga fólksins fær viðurkenningu
- Fimmtudagur, 3. janúar 2008, Innlent Samdráttur í bílainnflutningi
- Miðvikudagur, 10. desember 2008, Innlent Útgjöld heimila hækkuðu um 11%
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki




































