Eins og tundurskeyti
Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is
„Laxinn er um alla á, ekki nema um helmingur sem hefur veiðst neðan við þjóðveg. Svo siglum við enn þá í góðu vatni og verðum það næstu vikurnar,“ en Langá nýtur góðs af vatnsmiðlunarstíflu í Langavatni.
„Þótt við hefðum ekki veitt nema 50 laxa á sama tíma í fyrra þá enduðum við samt í 1450 fiskum. Nú stefnir í 2.000 laxa sumar, ef veður og vatnsskilyrði verða í lagi.“
Samkvæmt fréttavef SVFR er veiðin í Norðurá komin yfir 500 laxa og þar síðasta holl veiddi 137 sem er afar gott. Síðasta holl veiddi síðan 70 í norðanáttinni – á sama tíma í fyrra fékk það ekki nema sex.
Blússandi gangur er í veiðinni í Borgarfjarðaránum. Í Flókadalsá hafa þegar veiðst yfir 150 laxar á stangirnar þrjár, síðasta holl í Grímsá var það besta til þessa í sumar, fékk 30 laxa, og tvo síðustu holl í Kjarrá 30 og 40 laxa hvort. Minna er að veiðast í Þverá, sem heldur laxi ekki eins vel í litlu vatni eins og nú.
Fleiri drekar
Pétur Pétursson leigutaki Vatnsdalsár segir síðasta holl hafa veitt 28 laxa og fiskur sé orðinn ágætlega dreifður um ána, þótt það sé ekkert ofboðslega mikið gengið af honum. „En það eru fleiri drekar hér en þessi 24 punda sem veiddist. Við höfum séð þá í Stekkjarfljóti og það eru fleiri hér í Hnausastreng,“ en hann var að aðstoða erlenda veiðikonu á bakkanum þegar hringt var í hann. „Svo láta þeir sumir fara lítið fyrir sér, þar til í haust. Þá fara þeir svo sannarlega á kreik,“ sagði Pétur og ekki laust við spennu í röddinni.Stórlaxasumar
MUN fleiri stórir laxar eru að veiðast í ánum en síðustu sumur. Einar Gústafsson veiddi 101 cm langan hæng í veiðistaðnum Rúnka í Kjarrá og Örn Andrésson 99 cm hæng í Kaðalstaðahyl í Þverá. Þá hefur verið fjallað um metralanga hænginn sem Þorgeir Haraldsson veiddi í hinum fræga stórlaxahyl Hnausastreng í Vatnsdalsá og vó 24 pund eða 12 kíló í háfnum, áður en honum var sleppt aftur. Samkvæmt viðmiðunartöflu Veiðimálastofnunar er metralangur lax 20 pund.„Kvarðinn er nokkuð réttur í smálaxi en það er alveg hægt að bæta tveimur pundum við í stórum vorlaxi, segir Pétur Pétursson við Vatnsdalsá.





































