Samið við heimilislækna um rekstur læknastofu

Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæslan Fjörður Brynjar Gauti

Samninganefnd heilbrigðisráðherra (SHBR) og samninganefnd Læknafélags Íslands hafa gert samning um þjónustu heimilislækna á læknastofum utan heilsugæslustöðva. Þetta er rammasamningur til fimm ára. Á grundvelli hans er stefnt að útboði á rekstri læknastofu þriggja til fimm heimilislækna á höfuðborgarsvæðinu síðar á árinu.

Samningurinn á sér langan aðdraganda, samkvæmt tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu, en meginmarkmið hans er að efla heilsugæslu og heimilislækningar sem undirstöðu heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Með samningnum er ætlunin að bæta aðgengi sjúklinga að grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins, en einnig að gera stjórnvöldum og veitendum þjónustunnar kleift að bregðast skjótar en áður við breyttum aðstæðum og nýjum áherslum, samkvæmt tilkynningu.

„Þannig er samningnum ætlað að bæta þá þjónustu sem í boði er á hverjum tíma, auka svigrúm til fjölbreytilegri rekstrarforma og auðvelda útfærslu heilbrigðisþjónustunnar eins og henta þykir hverju sinni. Með því að efla grunnþjónustuna er jafnframt leitast við að styrkja stöðu þeirra sem sérhæfa sig í heimilislækningum."

Sambærilegar kröfur gerðar og til hins opinbera

Samningurinn miðast við að þrír eða fleiri heimilislæknar myndi teymi um faglegt samstarf og rekstur heilsugæslu- og læknastöðvar. Þjónustan sem samningurinn tekur til skal að jafnaði unnin á læknastofu heimilislæknis sem hlotið hefur sérfræðiviðurkenningu heilbrigðisstjórnar í heimilislækningum. Ákvæði í samningnum er þó ætlað að auðvelda læknum að sinna vitjunum, þ.e. sjúklingum sem ekki eiga heimangengt.

Sambærilegar kröfur munu gerðar til læknastöðva og lækna sem vinna eftir þessum samningi og gerðar eru í hinu opinbera heilsugæslukerfi. Miðað er við að sjúklingar velji lækni og að hann geti stöðvað skráningu sjúklinga á sig þegar þeir verða 1.500. Réttur sjúklings til að skipta um lækni er að öðru leyti tryggður. Þeir eiga að geta leitað til síns læknis með komu á stöð, í gegnum síma eða með tölvupósti og fengið viðunandi úrlausn samdægurs.

Unnið að gerð samnings við sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðinga

Á vegum samninganefndar heilbrigðisráðherra er unnið að gerð sambærilegs rammasamnings við sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðinga. Undirbúningsverkefni í samstarfi við lungnadeild LSH er að ljúka og er stefnt að rammasamningi um þjónustuna fyrir áramót.

Heimaþjónustu við langveika lungnasjúklinga er ætlað að bæta líðan og getu þeirra til að lifa með sjúkdóminn. Henni er jafnframt ætlað að fækka sjúkrahússinnlögnum og stytta legutíma. Kjarni þjónustunnar er sérhæfð hjúkrun sem fyrirhugað er að teymi hjúkrunarfræðinga tryggi með rekstri sjálfstæðrar hjúkrunarstofu, samkvæmt tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert