Ekki öll kurl komin til grafar

Hólavað 1-11 stækka

Hólavað 1-11 mbl.is/Frikki

Morgunblaðið Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is

Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir að í húsnæðinu við Hólavað sé ætlunin að reka áfangaheimili fyrir einstaklinga sem hafa lokið meðferð, en meðan ekki liggi fyrir hvort húsnæðið sé í hendi Heilsuverndarstöðvarinnar, sé ekki hægt að ganga frá samningum um stöðina og þar af leiðandi að kynna málið fyrir íbúum hverfisins. Það verði hins vegar gert, ef af samningum verði.

Velferðarráð ákvað á fundi sínum 9. apríl sl. að ganga til samninga við Heilsuverndarstöðina ehf. um rekstur áfangaheimilisins. Lægsta tilboðið var frá SÁA, en auk þeirra buðu Samhjálp og Ekron í reksturinn. Jórunn segir að tilboðin hafi ekki verið sambærileg og Innri endurskoðun borgarinnar hafi líka komist að því að hagkvæmasta tilboðinu hafi verið tekið.

Þekkingarleysi

Íbúar í hverfinu eru ekki sáttir við svona starfsemi inni í miðju íbúðahverfi og óttast að hætta fylgi heimilinu. Jórunn segir að um þekkingarleysi sé að ræða og ástæðulaust sé fyrir íbúana að óttast. Víða séu stuðningsheimili í venjulegum íbúðagötum í borginni, en fólk sé oft hrætt við það sem það þekki ekki. „Það er hræðsla í samfélaginu og mótmæli sem við höfum þurft að fara yfir og skoða,“ segir Jórunn. „Þetta húsnæði er talið henta sérstaklega vel af þeim sem hafa þekkingu á því.“

Jórunn segir mjög óheppilegt að húsnæðið sé í eigu þrotabús. Heilsuverndarstöðin hafi sagt í yfirlýsingu að hún hefði umrætt húsnæði til umráða, en samningar þess efnis yrðu að liggja á borðinu áður en hægt væri að ganga frá málinu.

Íbúar í Norðlingaholti furða sig á því að Reykjavíkurborg hafi ákveðið að koma á fót áfangaheimili í miðri íbúðabyggð án samráðs við íbúa hverfisins og gera ráð fyrir að afhenda borgaryfirvöldum mótmælalista í dag. „Það er ekki kynnt fyrir okkur hvað standi til. Það er eins og það eigi bara að skjóta fyrst og spyrja svo,“ segir Þormóður Skorri Steingrímsson, íbúi í hverfinu.

Við Hólavað 1-11 er raðhúsalengja í byggingu og stendur til að þar verði áfangaheimili fyrir fjóra einstaklinga í hverju húsi eða alls 24 manns. Þormóður Skorri Steingrímsson segir að fyrst hafi verið talað um að þarna ætti að vera eftirmeðferð á sprautufíklum en síðan hafi heyrst að húsnæðið yrði fyrir eftirmeðferð á áfengissjúklingum. Íbúarnir vissu ekki fyrir víst hvað ætti að vera þarna og fengju engar upplýsingar frá borgaryfirvöldum.

Síðan um helgi hefur undirskriftum verið safnað í hverfinu til stuðnings mótmælum vegna þess að málið hafi ekki verið kynnt íbúum og vegna staðsetningar starfseminnar. Hafsteinn Þór Eggertsson segir að söfnunin hafi gengið vel. Um 300 undirskriftir hafi fengist í fyrstu atrennu og afhenda eigi borgaryfirvöldum listana í dag.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Slöngurbátur 3,4 m Quicksilver
Til sölu quicksilver 3.4 m slöngurbátur í toppstandi. Lítið notaður. Gerður fyr...
Fleetwood Ceyenne - árgerð 2006
Fellihýsið hefur alltaf verið geymt inni á vetrum og er með öllum aukahlutum. Up...
Kynningartilboð á garðhúsum!!
Kofar og hús eru með kynningartilboð á garhúsum. Kynntu þér málið á www.kofarog...
Rockwood fellihýsi
Rockwood 10 feta, árgerð 2007. Fortjald, sólarsella, 2 gaskútar. Skoðað 2012. Ve...
 
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...