Sérstakt og aftast í röð virkjanakosta
Frá Þeistareykjum mbl.is/Birkir Fanndal Haraldsson
Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra vill að rannsóknarborhola í Gjástykki fari í mat á umhverfisáhrifum. Borholan er tilkynningarskyld til Skipulagsstofnunar, sem tekur von bráðar ákvörðun um hvort meta skuli áhrif framkvæmdarinnar. Gjástykki er háhitasvæði á mörkum Norður- og Suður-Þingeyjarsýslu, norðaustur af Mývatni. Rannsóknir á svæðinu benda til þess að þar sé að finna allt að 280 gráðu heitt vatn í jörðu. Af nálægum háhitasvæðum má nefna Þeistareyki, Kröflu og Bjarnarflag.
Iðnaðarráðuneytið var eitt sjö umsegjenda um framkvæmdina, og annar tveggja, ásamt Umhverfisstofnun, sem telur rétt að hún sæti umhverfismati. Hinir voru Orkustofnun, Aðaldælahreppur, Ferðamálastofa, Heilbrigðisstofnun Norðurlands eystra og Fornleifavernd ríkisins, sem telja umhverfisáhrif óveruleg að vissum skilyrðum uppfylltum.
Allar umsagnir eru sendar Landsvirkjun (LV) svo hún geti svarað þeim efnislega áður en Skipulagsstofnun tekur ákvörðun, en skv. upplýsingum þaðan á eftir að bregðast við umsögn iðnaðarráðuneytisins. Verður ákvörðun tekin fljótlega að því loknu. Umsagnir eru ekki bindandi fyrir Skipulagsstofnun en vega þungt í ákvörðun hennar, ákvörðun sem skjóta má til umhverfisráðherra hvernig sem hún fellur.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi LV, segir bagalegt hversu langan tíma hafi tekið að ná ákvörðun í málinu. Tilkynnt hafi verið um framkvæmdina í lok mars. Á meðal röksemda fyrir því að framkvæmdin eigi ekki að fara í umhverfismat, sem Þorsteinn nefnir, er að ummerki um rannsóknirnar megi afmá að mestu að þeim loknum.
Þá eigi að skábora undir svæði sem enginn vilji raska, sem sé dýrara en að bora beint. Til þess að komast hjá frekari vegagerð þurfi að bora í júlí eða ágúst. Einungis þá sé hægt að koma tækjabúnaði upp eftir. Dragist málið mikið lengur, eða fari í umhverfismat, gætu rannsóknir því dregist í heilt ár eða meira.
Iðnaðarráðherra segir umsögn sína aðallega byggða á tvennum rökum. Annars vegar sjaldgæfri og verðmætri jarðfræði svæðisins, en hins vegar því að Gjástykki er aftasti virkjunarkostur í röð háhitasvæða í Þingeyjasýslum, þ.e. Krafla og Þeistareykir eru framar í forgangsröðinni á samþykktu svæðisskipulagi sveitarfélaganna á svæðinu. Stefna þeirra er sú að ekki verði virkjað í Gjástykki nema hin svæðin gefi ekki nægjanlega orku fyrir starfsemi og atvinnuuppbyggingu.





































