Fengu rannsóknarleyfið

mbl.is/Guðmundur Rúnar

Félag í 40% eigu Envent, dótturfyrirtækis Geysis Green Energy og Reykjavík Energy Invest, var í gær úthlutað rannsóknar- og nytjaleyfi á jarðhitasvæði á Biliran, sem er ein Filippseyja. Gangi allt að óskum er ráðgert að reisa orkuver sem framleitt geti um 100 MW af rafmagni.

„Þetta er mjög gott mál,“ segir Ásgeir Magnússon, forstjóri Geysis Green Energy. „Þessi samningur festir í sessi vilja þarlendra stjórnvalda til að vinna með okkur og er vissulega áfangi á þeirri leið að koma þarna á fót virkjun.“ Ásgeir telur að um tvö til þrjú ár muni fara í rannsóknir á svæðinu. Á næsta ári verður ráðist í yfirborðsrannsóknir. Gangi þær vel verða boraðar tilraunaholur.

Óvíst með frekari þátttöku REI

Ákvörðun um að leggja fé í verkefnið og stofna dótturfélagið Envent var tekin undir stjórn síðasta meirihluta í Reykjavík, hins svonefnda 100 daga meirihluta. Lagt var til fjármagn sem duga mun til yfirborðsrannsókna, en ráðgert er að þær muni kosta um 800 þúsund dollara, þ.e. um sextíu milljónir króna.

Fari svo að yfirborðsrannsóknir gangi vel og farið verði í boranir, þarf meira fjármagn. Talið er að um fimmtán til sextán milljónir dollara þurfi.

Óvíst er hvort REI muni taka þátt í þeim hluta eða hvort leitað verður annarra fjármögnunarleiða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert