Ráðist á leigubílstjóra

Tveir ungir menn réðust á leigubílstjóra í Garðabæ í nótt. Mennirnir óku með leigubílstjóranum frá Reykjavík til Garðabæjar en þegar þangað var komið heimtuðu þeir peninga af honum, börðu hann í andlitið og höfðu í hótunum við hann. Þeir komust undan með þúsund krónur og farsíma leigubílstjórans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert