Tvöfalda þarf Hvalfjarðargöng á næstu 5 til 10 árum
Tíu ár eru liðin í dag frá því að Hvalfjarðargöng voru opnuð fyrir umferð almennings. mbl.is/Árni Sæberg
Tíu ár eru í dag liðin frá því að Hvalfjarðargöngin voru tekin í notkun. Við þau tímamót afhentu forráðamenn Spalar samgönguráðherra skýrslu um rannsóknir og tæknilega undirbúningsvinnu vegna nýrra ganga sem stjórnin telur að hefja þurfi framkvæmdir við innan fjögurra ára, að því segir í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu.
Kristján L. Möller samgönguráðherra þakkaði forráðamönnum Spalar fyrir forgöngu þeirra og þrautseigju við að vinna verkinu brautargengi svo og fyrir skýrsluna um undirbúning nýrra ganga. Hann sagði eðlilegt að huga að nýjum göngum til að mæta aukinni umferð í framtíðinni, um það væri ekki spurning. Verkið yrði umfangsmikið og undirbúningur tæki langan tíma. Hann sagði göngin ekki komin í samgönguáætlun ennþá en sagðist telja ljóst að ráðast yrði í tvöföldun á næstu 5 til 10 árum.
Samgönguráðherra sagði í ávarpi sínu í afmælisathöfn á Akranesi í dag að Hvalfjarðargöng hefðu fyrir löngu sannað ágæti sitt. Þau styttu þúsundum manna leið á degi hverjum, hefðu leitt til nýrrar þróunar í búsetu og atvinnusókn þau væru dæmi um hvernig samgöngumannvirki gætu skipt sköpum um slíka byggðaþróun.
Kostnaður við ný göng um 7,5 milljarðar
Samkvæmt skýrslu Spalar er áætlaður kostnaður við ný Hvalfjarðargöng um 7,5 milljarðar króna að virðisaukaskatti meðtöldum á verðlagi um mánaðarmótin maí/júní 2008. Þá er reiknað með öllum verkkostnaði og tilheyrandi búnaði ganganna ásamt vegskálum og vegtengingum beggja vegna auk kostnaðar við hönnun, umsjón og eftirlit. Fjármagnskostnaður er ekki meðtalinn og heldur ekki kostnaður vegna landakaupa.
Fram kemur í tilkynningunni að ætla megi að um þrjú og hálft ár líði frá því vinna hefjist við hönnun nýrra ganga til útboðs þar til göngin verða tekin í gagnið. Áður en næsta skref verði stigið þurfi annars vegar að ljúka landakaupum og hins vegar skipulagsferli beggja vegna Hvalfjarðar. Landakaupin eru á forræði Vegagerðarinnar. Þá er unnið að nýju aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar og breytingum á aðalskipulagi á Kjalarnesi.
Bloggað um fréttina
-
Stefán Friðrik Stefánsson Hvalfjarðargöng í áratug - tvöföldun í sjónmáli -
Einar Guðmannsson Leggja galdskýlið niður -
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir Á kostnað neytenda -
Sannleikskornið ekkert bull; ný Oddskarðsgöng !!! -
Villi Asgeirsson Brú
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 29. nóvember 2007, Innlent Spölur bíður eftir svari
- Fimmtudagur, 26. febrúar 2009, Innlent Spölur skuldar 4 milljarða
- Þriðjudagur, 4. desember 2007, Innlent Bíða svars um stækkun Hvalfjarðarganga
- Þriðjudagur, 7. ágúst 2007, Innlent Minni verslunarmannahelgarumferð um Hvalfjarðargöng en í fyrra
- Föstudagur, 4. janúar 2008, Innlent Rúmar 2 milljónir bíla um Hvalfjarðargöng
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki




































