Miklar tafir á flugi IcelandExpress
Mikil óánægja er nú meðal um 300 farþega IcelandExpress sem biðu á Íslandi og í Billund í Danmörku eftir flugi í gær og í nótt en fluginu seinkaði verulega vegna bilunar. Vélin átti upphaflega að fara frá Íslandi um miðjan dag í gær en farþegar komust ekki á leiðarenda fyrr en í morgun.
Vélin átti upphaflega að fara frá Íslandi klukkan 15:30 í gær en brottför var þá seinkað vegna bilunarinnar. Vélin fór síðan í loftið um klukkan ellefu í gærkvöldi en eftir um hálftíma flug var henni snúið við eftir að bilunarinnar varð aftur vart. Farþegar vélarinnar héldu loks héðan til Danmerkur klukkan ellefu í morgun.
Um 150 farþegar áttu flug með vélinni héðan til Danmerkur og álíka margir biðu í Billund. Vélin átti að fara frá Billund um klukkan ellefu í gærkvöldi en Lára Ómarsdóttir, upplýsingafulltrúi IcelandExpress, segir að legið hafi fyrir fyrr um daginn að seinkun yrði á brottför þaðan. Þegar vélin hafi verið farin í loftið frá Íslandi hafi farþegum í Danmörku hins vegar verið sagt það og margir hafi þá tékkað sig inn. Þeir hafi síðan þurft að bíða í flugstöðinni í nótt þar sem flugvélinni var snúið við. Þeir farþegar sem biðu í Billund komust áleiðis til Íslands skömmu fyrir hádegi í dag.
Lára segir að bilun hafi komið upp í umræddri flugvél í fyrradag en að illa hafi gengið að fá varahluti í vélina. Ekki hafi heldur gengið að fá leiguflugvél til að flytja fólkið á milli landa. Þá hafi gengið illa að finna hótel fyrir farþega, bæði þá sem biðu hér á landi og í Billund. Þeir hafi þó fengið mat og dýnur til að liggja á.
Þá segir hún forsvarsmönnum IcelandExpress þykja mjög leitt hvernig þetta mál þróaðist en allt hafi verið gert til að koma farþegum sem fyrst á áfangastað og draga sem mest úr óþægindum þeirra.
Bloggað um fréttina
-
Kristinn Sigurjónsson Tafir hjá fleirum en IcelandExpress -
Rósa Steingrímsdóttir Fleiri tafir hjá IcelandExpress í gær til DK -
Snorri Bergz Iceland Express?
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 28. ágúst 2008, Innlent Seinkun á flugi Iceland Express
- Fimmtudagur, 29. maí 2008, Innlent Farþegar upplýstir um bilun í flugvél til Alicante
- Fimmtudagur, 29. maí 2008, Innlent Hálfs sólarhrings seinkun á flugi til Alicante
- Mánudagur, 16. júní 2008, Innlent Stigu hringdans í flugstöðinni
- Sunnudagur, 28. júní 2009, Innlent Bilun í vél Iceland Express
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki




































