Erfið nótt á flugi
eftir Andra Karl andri@mbl.is
Sjúkraflutningar taka á taugar þeirra sem að þeim standa. Tíminn skiptir sköpum og því nauðsynlegt að rétt sé staðið að málum. Þegar um er að ræða neyðarbíl á höfuðborgarsvæðinu getur tekið, að því er virðist, óralangan tíma að komast frá Hafnarfirði og á Landspítalann. Að fá F1 útkall – fyrsti forgangur – frá Höfn þegar sjúkraflugvélin er fullfermd á Bíldudal er því ekki óskastaða.
„Þetta hófst þannig að klukkan hálfníu [á laugardagskvöld] hringdi læknirinn á Bíldudal. Hann var með ferðamann sem slasast hafði á hendi og vildi fá hann fluttan til Reykjavíkur. Og allt í góðu með það,“ segir Gunnar Björgvinsson, slökkviliðsmaður á Akureyri. „En þegar við vorum að gera okkur klára kom beiðni frá Neskaupstað. Báðir þurftu sjúklingarnir að fara til Reykjavíkur, þannig að við ákváðum að nýta ferðina.“
Bráðatæknir úr borginni
Í báðum tilvikum var um að ræða slík tilvik að ekki þurfti lækni og var hann því skilinn eftir á Akureyri, á heimastöð sjúkraflugsins. Þrátt fyrir slæmt flugveður gekk ferðin vel. Eftir tæpar tvær og hálfa klukkustund var sjúkraflugvélin stödd á Bíldudal með báða menn um borð. „Þegar þeir voru að fara í loftið kom enn eitt útkallið, frá Höfn.“ Ungur maður hafði lent í bílslysi og grunur var um innvortis meiðsli.Haft var samband við Landhelgisgæsluna og þar á bæ var búist við að geta komist á Höfn eftir tvær klukkustundir. Það var ekki talið viðunandi að flugvélin yrði á undan. Því var flogið til Reykjavíkur og mönnunum tveimur „skilað“. Þar sem enginn læknir var um borð og of langt að fara aftur til Akureyrar var leitað til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Beiðni um bráðatækni var vel tekið og var hann fljótur niður á flugvöll. Einnig var tekið með í ferðina blóð frá Blóðbankanum. Þar sem áhöfnin hafði klárað flugtíma sinn á leiðinni þurfti einnig að skipta um áhöfn. Svo var haldið af stað. Ferðin gekk vel og maðurinn ungi komst vel og örugglega undir læknishendur. Hann er ekki lífshættulega slasaður.
Gunnar segist ekki muna eftir annarri eins nóttu, en áður en vaktin hófst klukkan átta var búið að fara í tvær flugferðir. Vélin hafi þá verið meira og minna í loftinu frá því klukkan hálfníu og þar til heim var komið klukkan hálffimm á sunnudagsmorgun. Þarna hafi jafnframt þurft að taka mikilvægar ákvarðanir og þakkaði hann kollegum sínum hjá SHS sérstaklega.
Farið var í tæplega 500 sjúkraflugferðir á síðasta ári og hefur þeim fjölgað töluvert í ár. Gunnar telur að farið verði í vel yfir 500 flugferðir á þessu ári.





































