Gæsluvarðhald vegna hnífsstungu
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður sæti gæsluvarðhaldi fram á föstudag en hann er grunaður um að hafa stungið annan karlmann í hálsinn með hnífi að morgni síðasta laugardags.
Fram kemur í úrskurði héraðsdóms að lögreglan hafi verið kölluð að skemmtistað við Tryggvagötu vegna manns sem ógnaði fólki þar með hnífi. Þegar lögreglan kom á staðinn sá hún menn í átökum. Lögreglumennirnir handtóku mann og á sama tíma komu þangað dyraverðir á öðrum skemmtistað og í fylgd þeirra var maður, sem var með stungusár á hálsi. Sögðu dyraverðirnir, að maðurinn, sem hafði verið handtekinn, hefði stungið hinn manninn.
Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á sjúkrahús en meintur árásarmaður á lögreglustöð. Í buxnavasa hans fannst blóðugur hnífur, einkennilegur í laginu og líktist helst laufblaði.
Fram kemur í læknisvottorði, að sá sem varð fyrir árásinni hafi fengið 5 sentimetra djúpt sár en hnífsblaðið fór að mestu leyti í gegnum vöðva og inn að hryggsúlu. Segir ljóst að um alvarlegan áverka sé að ræða og hafi litlu mátt muna að mikilvæg líffæri laskist sem hefði getað leitt til lífshættulegs ástands, örkumla eða jafnvel dauða.
Sakborningurinn kannaðist ekki við að hafa borið hníf á sér og ekki beitt hnífi í átökunum við hinn manninn. Segir í dómsúrskurðinum, að maðurinn haldi því fram að hugsanlega hafi hnífnum verið komið fyrir í vasa hans. Lögreglu þykir hins vegar kominn fram rökstuddur grunur um að maðurinn hafi framið brot sem varði allt að 16 ára fangelsisrefsingu.
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 13. ágúst 2008, Innlent Gæsluvarðhald vegna hnífsstungu staðfest
- Föstudagur, 8. ágúst 2008, Innlent Gæsluvarðhald vegna hnífsstungu staðfest
- Miðvikudagur, 10. september 2008, Innlent Staðfest gæsluvarðhald vegna árásar
- Mánudagur, 11. maí 2009, Innlent Í gæsluvarðhaldi vegna síbrota
- Mánudagur, 5. nóvember 2007, Innlent Í gæsluvarðhaldi þar til hæstaréttardómur fellur
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki




































