Vegagerðin hagar sér ekki eins og ríki í ríkinu
Vegagerðin hagar sér ekki eins og ríki í ríkinu segir í tilkynningu sem stofnunin hefur sent frá sér vegna ummæla Bergs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Landverndar, í fjölmiðlum í dag. Segir Vegagerðin að því fari fjarri að hún ráðist í framkvæmdir „sama hvað tautar og raular” líkt og Bergur haldi fram.
Í tilkynningunni segir síðan:
„Ákvarðanir um vegalagningu, til dæmis varðandi Dettifossveg, Lyngdalsheiðarveg og Vestfjarðaveg um Teigsskóg, eru ekki teknar að óathuguðu máli eins og stundum mætti ætla af umræðunni. Í öllum þessum tilvikum hefur farið fram ítarlegt mat og skoðun á mögulegum veglínum. Vegagerðin leggur fram möguleikana og mælir gjarnan með einum umfram annan. Mat á umhverfisáhrifum fer fram þar sem farið er yfir þá þætti er snúa að umhverfinu og náttúrunni. Skipulagsyfirvöld, þ.e. sveitarstjórnir, taka síðan ákvörðun um skipulag og þar með talda veglínuna og gefa út framkvæmdaleyfi. Allt þetta ferli tekur gjarnan nokkur ár og síðan bætast við samningar við landeigendur.
Vegagerðin tekur þannig ekki ákvörðunina um hvaða leið verður endanlega fyrir valinu þótt Vegagerðin færi rök fyrir því afhverju hún telji einn kost öðrum betri. Má til dæmis varðandi Dettifossveg nefna að árið 2001 var stofnaður samráðshópur sem í áttu sæti fulltrúar sveitarfélaga, Náttúruverndar ríkisins, Ferðamálaráðs og Samtaka ferðaþjónustunnar auk Vegagerðarinnar sem komst að þeirri sameiginlegu niðurstöðu síðla árs 2002 að legga veginn vestan Jökulsár.
Vegagerðin verður í mati sínu þess utan að taka tillit til allra þátta ekki einungis eins þáttar. Enda er markmið Vegagerðarinnar:
„Að þróa og sjá um vegakerfið á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.”
Með þessu er átt við að samgöngur séu tryggar allt árið með eins litlum tilkostnaði og eins miklum þægindum og hægt er fyrir vegfarendur. Sérstök áhersla er lögð á samgöngur innan þjónustusvæða og að leiðarvísun sé eins skilmerkileg og frekast er kostur. Við gerð vega og viðhald þeirra er lögð sérstök áhersla á að slys verði sem fæst á vegfarendum ekki síst hinum óvarða eða gangandi vegfaranda. Reynt er að taka sem mest tillit til óska vegfarenda og að sambúð vegar og umferðar við umhverfi og íbúa sé sem best. Sérstaklega er reynt að hafa mengun eins litla og hægt er og sýna náttúru og minjum tillitsemi."
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Vegagerðin ekki ríki í rikinu?????? -
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson Vegir og náttúruvernd í þremur landshlutum -
G. Valdimar Valdemarsson En sumir telja sig ríki í ríkinu
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 23. júlí 2008, Innlent Sakar samgönguráðherra um skilningsleysi
- Föstudagur, 28. mars 2008, Innlent Vegagerðin fór rangt með
- Föstudagur, 11. janúar 2008, Innlent Göng 9 milljörðum dýrari
- Miðvikudagur, 9. apríl 2008, Innlent Akstursstefnur aðgreindar
- Sunnudagur, 27. apríl 2008, Innlent Almenningur segi álit sitt á Gjábakkavegi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji




































