Nýir verktakar að verksmiðjunni
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson hsb@mbl.is
Undanfarið hefur verið unnið að því að reisa aflþynnuverksmiðju á Krossanesi. Vinnan hefur þokast afar hægt síðustu vikur eftir að samningum við verktakann sem reisa átti verksmiðjuna var sagt upp. Nýir verktakar hafa tekið við því verkefni að reisa verksmiðjuna. Dómsmál vegna samningsins við fyrri verktaka sem var rift verður rekið á Ítalíu.
Upphaflega var samningur gerður á milli ítalska verktakafyrirtækisins D&V og íslenska félagsins Becromal Properties ehf. sem er að 60% í eigu Strokks ehf. og 40% í eigu fyrirtækisins Becromal S.pa. Í samningnum var kveðið á um að D&V reisti verksmiðju í eigu Becromal Properties, sem væri leigð til Becromal Iceland ehf. undir starfsemina.
Þessum samningi hefur verið rift og eru sagðar margvíslegar ástæður fyrir því. Í grunninn má segja að óánægja sé hjá Becromal Properties með það hvernig verkið hefur verið unnið, en D&V telja sig ekki hafa fengið greitt að fullu.
Þar með er ekki öll sagan sögð. Ítalska verktakafyrirtækið D&V fékk íslensk verktakafyrirtæki til liðs við sig. Þessum íslensku verktökum hefur verið sagt upp um leið og ítalska verktakanum var sagt upp.
Fæstir íslensku verktakanna bera framkvæmdinni vel söguna og segja margt óljóst enn við verksmiðjuna. Til dæmis liggja endanlegar teikningar að verksmiðjunni ekki fyrir. Þeim teikningum, sem notast hefur verið við, hefur verið margvíslega breytt frá því framkvæmdir hófust. Ýmsar verkfræðilegar úrlausnir virðist vanta inn á teikningarnar. Einn viðmælanda Morgunblaðsins gaf í skyn að ástandið hefði verið stjórnlaust.
Í dag verða samningar undirritaðir við nýja verktaka og segir framkvæmdastjóri Strokks ehf., Eyþór Arnalds, að málið muni í kjölfarið leysast og vinna fara á fullan snúning.
Ljóst er þó að nýir verktakar verða að hafa hraðar hendur, en samkvæmt samningum sem liggja fyrir mun Becromal-verksmiðjan í haust kaupa raforku sem nota á við gerð aflþynnanna.
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 9. október 2008, Innlent Nýr eigandi aflþynnuverksmiðju
- Miðvikudagur, 15. ágúst 2007, Innlent 90 ný störf með nýrri aflþynnuverksmiðju í Eyjafirði
- Fimmtudagur, 11. september 2008, Innlent Vilja tvöfalda framleiðsluna
- Föstudagur, 5. september 2008, Innlent Ekið norður með verksmiðju í 60 gámum
- Fimmtudagur, 13. mars 2008, Innlent Orkan notuð til að kynda gróðurhús
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji




































