,,Obama er ljósið í myrkrinu"

Hundruð þúsunda hlýddu á bandaríska forsetaframbjóðandann Barack Obama  þegar hann hélt ræðu í Berlín í dag. Var honum tekið sem rokkstjörnu og mál manna að þarna væri maðurinn kominn sem myndi bæta tengslin milli Bandaríkjanna og Evrópu.

Svavar Knútur Kristinsson, tónlistarmaður, er á tónleikaferðalagi í Berlín og var viðstaddur ræðu Obama sem lauk fyrir stundu. Segir hann að upplifunin hafi verið ótrúleg.

,,Það var ótrúleg stemning á svæðinu, ekki ósvipuð því og rokkstjarna væri komin á staðinn. Hér voru allra þjóða kvikinda og sennilega meira af útlendingum en Þjóðverjum. Fólk var að koma hingað sérstaklega frá Bandaríkjunum og öðrum Evrópulöndum, bara til þess að sjá hann. Fólk sagði við mig: Ég vil geta sagt barnabörnunum að ég hafi verið hér.”

Svavar sagði meirihluta viðstaddra hafa verið ungt fólk. Víða mátti sjá skilti með nafni Obama og setningum eins og Barack’n roll enda hefði allt umhverfið verið eins og risastórir tónleikar væru í borginni en ekki stjórnmálamaður.

,,Alls staðar mátti sjá bjórsölustanda, sölumenn með ýmsan varning eins og stuttermaboli með mynd Obama, derhúfur og annan varning. Menn bera líka svo miklar vonir til hans,” segir Svavar.

Obama helgaði ræðu sína utanríkismálum og sagði að Berlín væri táknmynd frelsisins. Hann sagði að mikilvægt væri að Bandaríkjamenn áttuðu sig á alheimssamhengi fátæktar og umhverfisvanda og að rætur ýmissa vandamála sem steðjuðu að Bandaríkjamönnum væri að finna í fátækt. Það væru hagsmunir allra að vinna í sameiningu að því að leysa vandamál eins og fátækt og umhverfisvandamál. Dreifa þyrfti betur auðæfum heimsins og vinna að jöfnuði. Bandaríkjamenn þyrftu að skilja að rætur hryðjuverka lægju oft í fátækt. Þessir gömlu bandamenn, Evrópa og Bandaríkin, þyrftu að vinna saman.

Undirtektir almennings voru gríðarlega góðar, segir Svavar Knútur. Tekið var undir með húrrahrópum og lófataki eftir nánast hverja einustu setningu. ,„Ég talaði við marga og svo virðist sem fólk líti á hann sem ljósið í myrkrinu, að ef hann hann nái kjöri þá eigi hann eftir að sameina heiminn.”

Svavar sagði að endingu að það væri mál manna að hefði John McCain, mótframbjóðandi Obamas, komið í heimsókn hefði hann tæplega getað fyllt eitt hús.

Ræða Obamas í heild 

Barack Obama veifar til fjöldans í Berlín.
Barack Obama veifar til fjöldans í Berlín. Reuters
Barack Obama í Berlín í dag.
Barack Obama í Berlín í dag. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert