Segir ljóst að Birtuvirkjun hafi verð slegin af

Af Hengilsvæðinu þar sem til stóð að byggja Bitruvirkjun
Af Hengilsvæðinu þar sem til stóð að byggja Bitruvirkjun Af vefnum hengill.nu

Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir alveg ljóst, að Bitruvirkjun hafi verið slegin af meðan á samstarfi núverandi borgarstjórnarmeirihluta stendur. Yfirlýsingin er send vegna ummæla Kjartans Magnússonar, formanns stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, í Fréttablaðinu, um að ekki hafi verið hætt við virkjunina heldur hafi undirbúningi verið hætt á meðan málið sé skoðað betur. 

Yfiirlýsingin er eftirfarandi:

„Um árabil hefur Framsóknarflokkurinn haft lykilstöðu í borgarstjórn Reykjavíkur til að koma í veg fyrir að þau umhverfissjónarmið sem lágu til grundvallar því að Bitruvirkjun var slegin af næðu fram að ganga. Sama hefur raunar gilt varðandi önnur orku- og virkjanamál á vettvangi borgarstjórnar Reykjavikur þar sem R listinn samþykkti á sínum tíma þátttöku Reykjavíkurborgar í Kárahnjúkavirkjun. Ýmis önnur umhverfissjónarmið eins og til dæmis verndun menningarminja og gamallar byggðar hafa einnig átt undir högg að sækja í borgarstjórn Reykjavíkur af sömu orsökum. Í því sambandi má nefna að Vinstri grænir þurftu í valdatíð R listans að ganga á bak orða sinna í húsverndarmálum. Ég hef hins vegar ekki hugsað mér að framfylgja annarri stefnu í umhverfismálum eftir að ég varð borgarstjóri en þeirri sem ég hef staðið fyrir frá því ég var í minnihluta í borgarstjórn.

Það er alveg ljóst að Bitruvirkjun hefur verið slegin af.Vangaveltur um annað eru óþarfar á meðan núverandi meirihluti F-lista og Sjálfstæðisflokks er við stjórn borgarinnar, enda er ákvörðunin í samræmi við þær grænu áherslur sem kveðið er á um í málefnasamningi meirihlutans."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert