Bókuðu bara um möguleika
eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is
Hvergi í þeirri bókun skipulagsráðs Reykjavíkur, sem sett var inn í keppnislýsingu samkeppninnar um hús Listaháskóla Íslands (LHÍ) á svonefndum Frakkastígsreit, kemur fram að ekki megi hrófla við húsunum á Laugavegi 41 og 45. Í verðlaunatillögu +Arkitekta fær húsið við Laugaveg 41 að vera um kyrrt en hús nr. 43 og 45 þurfa að víkja.
Bæði Ólafur F. Magnússon borgarstjóri og Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, segja að laga þurfi bygginguna betur að þeirri götumynd sem borgarstjórnin vill halda í við Laugaveg. Í vinningstillögunni hafi ekki verið tekið fullt mið af fyrrnefndri bókun í samkeppnislýsingunni sem sett var inn að beiðni skipulagsráðsins. Ólafur hefur lýst yfir þeirri skoðun sinni að öll húsin eigi að standa, annaðhvort með því að fella þau inn í nýbygginguna eða búa til göngustíg á milli.
„Vakin er athygli á bókun skipulagsráðs Reykjavíkurborgar frá 28. júní 2006, sem er svohljóðandi: „Ráðið leggur einnig mikla áherslu á að lóðarhafar athugi sérstaklega útlit húsa við Laugaveg 41 og 45 og skoði möguleika á því að leyfa upprunalegri götumynd að halda sér.““ Svona hljómar klausan sem sett var í keppnislýsinguna.
Bent hefur verið á að í fyrrnefndri bókun felist töluvert rými til túlkunar. Hvergi segir að húsin verði að standa en væri það skilyrðið hefði svo átt að standa í bókuninni. Þá geri verðlaunatillagan Laugavegi 41 töluvert hátt undir höfði með því að draga inn nýbygginguna svo gamla bárujárnshúsið njóti sín betur. Að auki sé reynt að láta nýbygginguna falla inn í götumyndina með því að gera hana ámóta háa og húsin í nágrenninu.
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 24. júlí 2008, Innlent Má ekki rífa Laugaveg 43
- Laugardagur, 26. júlí 2008, Innlent Nýr skóli þarf að aðlaga sig betur götumynd Laugavegar
- Fimmtudagur, 12. mars 2009, Innlent Karpað um Laugaveg 4-6 í borgarráði
- Föstudagur, 25. júlí 2008, Innlent Listaháskólinn veldur vonbrigðum
- Fimmtudagur, 10. janúar 2008, Innlent Meirihlutinn vill ný hús við Laugaveg
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji




































