Ekki grunur um ölvun
Lögreglan í Borgarnesi segir, að ekki leiki grunur á að ökumaður jeppa, sem valt á Holtavörðuheiði á föstudagskvöld, hafi verið undir áhrifum áfengis. Að sögn lögreglu eru alltaf teknar blóðprufur til þess að kanna ástand ökumanna eftir slys en ekkert hafi bent til þess að maðurinn hafi verið ölvaður.
Tveir farþegar jeppans voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á gjörgæsludeild Landspítala Í Fossvogi og er einn þeirra enn í öndunarvél á gjörgæsludeild. Ökumaður hefur fluttur á almenna deild og annar farþegi bílsins er útskrifaður.
Fram kom í fjölmiðlum á föstudagskvöld, þar á meðal á mbl.is, að grunur léki á að ölvun hafi komið við sögu. Lögreglan í Borgarnesi segist ekki kunna skýringar á því hvaðan þær upplýsingar komu en segist ekki vita til að þær hafi komið frá lögreglu. Það skal hins vegar tekið fram, að blaðamaður mbl.is, sem skrifaði fréttina, hafði upplýsingar sínar þaðan.
Að sögn lögreglu er starfsregla að blóðprufur séu alltaf teknar í aðstæðum sem þessum, til þess að kanna ástand ökumanna eða einhvers sem gæti hafa haft áhrif á slys og til þess að útiloka möguleika á ölvun. Ökumaður jeppans hafi verið meðvitundarlaus eða ekki viðræðuhæfur eftir slysið.
Jeppinn valt á Holtavörðuheiði, skammt frá eyðibýlinu Fornahvammi í Norðurárdal, á föstudagskvöld.
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 23. ágúst 2008, Innlent Enn á gjörgæslu
- Föstudagur, 24. júlí 2009, Innlent Velti bíl ölvaður
- Miðvikudagur, 8. júlí 2009, Innlent Bílvelta á Fljótsheiði
- Mánudagur, 7. apríl 2008, Innlent Tókst að forða slysi með því að fara á rangan vegarhelming
- Sunnudagur, 14. október 2007, Innlent Annasöm vika hjá lögreglunni á Akranesi
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji




































