Gömul loforð verði fjarlægð úr stjórnarsáttmála

Ellert B. Schram.

Ellert B. Schram.

Ellert B. Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að miklar breytingar á aðstæðum frá í fyrra, þýði öðrum þræði að stjórnarsáttmáli frá í maí í fyrra hafi litla sem enga þýðingu. Hann vill endurskoða stjórnarsáttmálann.

Ekki er hefð fyrir því að smíða nýjan stjórnarsáttmála á miðju kjörtímabili. Ellert B. Schram leggur þetta til í grein í Morgunblaðinu í gær.

Hugmyndin fær lítinn hljómgrunn stjórnarþingmanna sem kannast ekki við að hún hafi verið rædd. Ellert segir að þegar ríkisstjórnarsáttmálinn var gerður hafi verið þensla og mönnum helst í hug að draga úr framkvæmdum í byggingariðnaði og/eða stórvirkjunum. Engum hafi heldur dottið í hug að skipta krónunni út fyrir evru. Nú hafa aðstæður breyst svo mikið að ekki eigi að binda sig við úr sér gengnar ályktanir flokka eða landsfunda. „Skoðum stjórnarsáttmálann upp á nýtt og gerum það sem gera þarf við gjörbreyttar aðstæður, til þess eru stjórnmálin að hugsa upp á nýtt.“

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, telur ekki þörf á því að taka upp stjórnarsáttmálann. „Ég tók þátt í gerð stjórnarsáttmálans á Þingvöllum og hann heldur, sem formlegur farvegur um ákveðinn grundvöll, en nálgun má breyta. Flokkarnir samræma sín sjónarmið og þurfa ekki heilan stjórnarsáttmála til þess. Auðvitað vil ég nýja nálgun í Evrópumálum, en ekkert í stjórnarsáttmálanum stöðvar það. Ekkert útilokar heldur nýja nálgun í umhverfismálum í hvora áttina sem er.“

Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sér enga þörf á að breyta stjórnarsáttmálanum. Ekkert orðalag kallar á nýjan sáttmála. Evrópusambandsaðild er ekki á dagskrá og mikil umræða um evrumál hefur engu skilað enn þá. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki tilbúinn og frá virkjanasjónarmiðum er ekkert í sáttmálanum sem stangast á við þau áform sem uppi eru.

Frekar að kjósa upp á nýtt

Ellert vill hugsa upp á nýtt, en Ögmundur Jónasson VG telur réttara að kjósa upp á nýtt, ef ársgömul fyrirheit eru nú ómark.

„Það hljóta að vera nokkrar fréttir fyrir kjósendur. Menn verða að sýna rétt spil og ráði ríkisstjórnin ekki við ástandið án þess að rífa upp með rótum öll fyrirheit sem gefin voru og skipta um grunnafstöðu hlýtur að þurfa að kjósa,“ segir Ögmundur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
1 dekk 640/13 til sölu.
Ónotað dekk 640/13 til sölu á 5þúsund kall. uppl.8691204...
Bókhald-ársreikningar-skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
3 Silky Terrier strákar til sölu
Tilbúnir til afhendingar. Heilsufarssk., örmerktir og fullbólusettir. Ættbókarf...
BIKINI RAUTT
Aðhaldsföt - Sundbolir - Tankini - Bikini - Náttföt - Undirföt - Sloppar. Frú Si...
 
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...