Mun túnstærð ráða stuðningi ríkisins?
Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is
Ef breyta á stuðningi ríkisins við íslenska bændur úr gulum greiðslum í grænar er hætt við að stuðningur ríkisins við þá sem eru að reyna að lifa af því að stunda landbúnað verði ómarkvissari. Það liggur hins vegar fyrir að ef samningar nást í Doha-viðræðunum í Genf geta íslensk stjórnvöld ekki haldið stuðningi við íslenska landbúnað óbreyttum.
Meginhluti stuðnings ríkisins við landbúnað er í formi beingreiðslna til mjólkurframleiðanda (tæplega 5 milljarðar) og sauðfjárbænda (um 3,6 milljarðar). Stuðningur við kúabændur er skilgreindur sem gular greiðslur, þ.e. markaðstruflandi. Stuðningur við sauðfjárbændur hefur hins vegar verið skilgreindur sem grænar greiðslur (ekki markaðstruflandi), m.a. vegna þess að hann feli í sér byggðastuðning.
Einar K. Guðfinnsson landbúnaðarráðherra hefur margsinnis lýst því yfir að stjórnvöld muni ekki minnka heildarstuðning ríkisins við bændur þó að samningar náist í Genf sem fela í sér að allar þjóðir verði að skera niður markaðstruflandi stuðning (gular greiðslur). Fleiri hafa raunar tekið undir þessa afstöðu, t.d. hefur forysta ASÍ tekið undir þetta sjónarmið, en á móti krafist verulegrar lækkunar á tollum.
Stóra spurningin er: hvernig verður þeim fimm milljörðum, sem farið hafa árlega í beingreiðslur til mjólkurframleiðenda, varið í framtíðinni?
„Reglur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um hvernig stuðningur er færður úr gulum greiðslur í grænar greiðslur eru talsvert stífar. Það verður mjög vandasamt að gera þetta. Vandinn við að breyta þessum gulu greiðslum yfir í grænar er að stuðningurinn verði miklu ómarkvissari,“ segir Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.
Hvað eru grænar greiðslur?
Grænar greiðslur kallast stuðningsaðgerðir sem ekki tengjast framleiðslu búvara og hafa lítil eða engin markaðstruflandi áhrif. Um er að ræða ýmsar aðgerðir, t.d. almennan stuðning við þjónustu við landbúnaðinn, ótengdan tekjustuðning, byggðastuðning, rannsóknir í landbúnaði og stuðningsáætlanir í þágu umhverfisins. Greiðslur til landeigenda flokkast undir grænar greiðslur.
Hvað eru bláar greiðslur?
Bláar greiðslur falla undir það sem kalla má framleiðsluletjandi. Dæmi um þetta eru greiðslur á grip, en þær hófust hér á landi í litlum mæli á síðasta ári.
Hvað eru gular greiðslur?
Gular greiðslur eru annar stuðningur, m.a. framleiðslutengdar og markaðstruflandi stuðningsaðgerðir, sem WTO vill að dregið verði úr. Beingreiðslur ríkisins til mjólkurframleiðenda á Íslandi falla undir þennan flokk.





































