Góð laxveiði fyrir vestan

Laugardalsá í Djúpi.
Laugardalsá í Djúpi. mbl.is/Golli

Góð veiði hefur verið í sumar í Laugardals- og Langadalsá. Í Langadalsá hafa veiðst 146 laxar og í Laugardalsá 254 en það er meira en veiddist allt síðastliðið sumar.

Laxveiðimenn í Ísafjarðardjúpi hafa ekki farið tómhentir heim í sumar en mikið af fiski hefur veiðst í Laugardals- og Langadalsá. Að sögn Kristjáns Steinþórssonar, veiðivarðar Langadalsár, hefur veiði verið með besta móti.

„Það sem af er sumri hafa veiðst 146 laxar og ein bleikja sem er gríðarleg aukning frá því í fyrra. Tímabilið byrjar hérna 21. júní og veiddist fyrsti laxinn á fyrstu dögum, en til samanburðar veiddist fyrsti laxinn í fyrra ekki fyrr en 6. júlí. Við vorum með hóp hérna um daginn sem var að veiða á þrjár stengur í sex daga og tók 62 laxa, það sýnir kannski hvað áin hefur gefið vel“, segir Kristján, „Okkar helsta vandamál núna er að það fer að bera á vatnsskort ef það fer ekki að rigna fljótlega“.

Í Laugardalsá kvarta menn svo sannarlega ekki undan veiðileysi en veiðimenn hafa mokað fisk upp á bakkann það sem af er sumri. „Nú þegar hafa veiðst 254 laxar sem er meira en það sem veitt var á öllu síðasta sumri“, að sögn Sigurjóns Samúelssonar, veiðivarðar Laugardalsár, en tímabilið endar 20. september. „Þetta er því mikið betra en í fyrra og ég hef ekki orðið var við neinn veiðimann sem fer ekki ánægður í burtu að lokinni veiði í ánni

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert