Hitamet slegið á Stórhöfða

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/Brynjar Gauti

Hitamet var slegið á Stórhöfða í dag en mestur hiti sem mældist í dag var 21,6 gráða en þetta staðfesti Óskar J. Sigurðsson, vitavörður og veðurathugunarmaður á Stórhöfða, að því er fram kemur á sunnlenska fréttamiðlinum sudurlandid.is.

„Ég var einmitt að fletta þessu upp áðan þannig að þetta er mér enn í fersku minni.  Mestur hiti sem hafði mælst á Stórhöfða fyrir daginn í dag var 1924 en þá mældist 21,3 gráða en það er mjög sjaldgæft að hitastigið fari yfir 20 gráðurnar.  Það er reyndar aðeins farið að kólna núna og þá færist rykmistur hér yfir.  Þá mældist mestur hiti í Vestmannaeyjabæ 23,6 gráður í dag,“ sagði Óskar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert