Olíufélög boðuð á fundi um verðmyndun gagnvart neytendum

Gísli Tryggavson, talsmaður neytenda.
Gísli Tryggavson, talsmaður neytenda.

Talsmaður neytenda hefur boðað til sín á fundi fulltrúa olíufélaganna fjögurra, hvers um sig, í byrjun ágúst í því skyni að ræða verðmyndun gagnvart neytendum á bensíni og dísilolíu.

Um er að ræða eftirfarandi olíufélög á neytendamarkaði: Atlantsolía, N1 ásamt Ego, Olís ásamt ÓB og loks Skeljungur ásamt Orkunni.

Fram kemur í tilkynningu frá talsmanni neytenda að boðað sé til fundarins „í því skyni að fá upplýsingar um verðmyndun á olíu á neytendamarkaði í ljósi umræðu sem lengi hefur staðið og fer vaxandi með flökti á gengi og heimsmarkaðsverði á olíu.“

Fram kemur í fundarboði að á þessu stigi sé fyrst og fremst spurt um eftirfarandi:

1.  „Hvernig er verðmyndun á bensíni og díselolíu á neytendamarkaði háttað hjá félaginu (t.d. ef eitthvert sérstakt módel er viðhaft)?

2.  „Er samkvæmni í því hvort og þá hversu fljótt verði á þessum vörum á neytendamarkaði er breytt við breytingar á gengi og við breytingar á heimsmarkaðsverði - annars vegar þegar verð í IKR hækkar og hins vegar þegar verð í IKR lækkar?“

Viðmiðunartímabil sem talsmaður neytenda vísar til í væntanlegri athugun eru fyrstu sjö mánuðir ársins 2008.

Fram kemur að ekki liggi fyrir á þessu stigi hvort einhverjar upplýsingar frá fundunum - og þá hvaða upplýsingar - verði birtar opinberlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert