Götum lokað vegna embættistöku

Frá innsetningarathöfninni fyrir fjórum árum.
Frá innsetningarathöfninni fyrir fjórum árum.

Svæði í miðborg Reykjavíkur verður lokað fyrir umferð á morgun vegna innsetningar í embætti forseta Íslands. Um er að ræða Kirkjutorg við Skólabrú, Templarasund við Vonarstræti og Kirkjustræti við Pósthússtræti.

Lögreglan vill benda vegfarendum góðfúslega á að finna sér aðrar leiðir. Þeir sem hyggjast nýta sér bílastæði í miðborginni eru sömuleiðis beðnir að hafa þetta hugfast svo komast megi hjá óþægindum.

Umrætt svæði verður lokað fyrir umferð frá hádegi og til hálfsex síðdegis.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert