Hringvegurinn kominn í samband
Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is
Allur þjóðvegur 1, hringvegurinn, er nú kominn í gsm-samband eftir að Síminn kveikti á nýjum sendi á Krókhálsi í Norðurárdal. Þar með lauk þeim áfanga í framkvæmd fjarskiptaáætlunar sem Fjarskiptasjóður og Síminn sömdu um í janúar 2007, en með samningnum var Símanum falið að koma á farsímaþjónustu á öllum hringveginum, á fimm fjallvegum og nokkrum ferðamannastöðum.
Næsta hluta áætlunarinnar hreppti hins vegar Vodafone, og á honum að vera lokið um næstu áramót. Þar er gert ráð fyrir að önnur stór svæði komist í gsm-samband, m.a. á Vestfjörðum, Norðausturlandi og Snæfellsnesi.
Kristján L. Möller samgönguráðherra og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, voru viðstaddir opnun sendisins. Í ávörpum lögðu báðir áherslu á aukið öryggi vegfarenda með tilkomu símasambandsins.
Hjá Símanum stendur nú til að setja upp langdrægt þriðjukynslóðarkerfi og segir Sævar Freyr Ísland vera með fyrstu löndunum þar sem slíkt kerfi er sett upp. „Við náum með þessu að dekka allt landið á næstu tveimur árum eða svo,“ segir Sævar og vonar að með auknu farsímasambandi verði bylting í gagnaflutningum fyrir alla landsmenn.
Spurður um hvað stjórnvöld hyggist gera næst til að bæta fjarskipti á landsbyggðinni bendir Kristján m.a. á háhraðaútboð Fjarskiptasjóðs, sem snúist um að koma á háhraðanettengingu fyrir a.m.k. 1.200 sveitabæi, en sú tala hefur reyndar minnkað nokkuð.
Innlent »
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 7. ágúst 2008, Innlent Ekki alls staðar farsímasamband á hringvegi
- Fimmtudagur, 31. júlí 2008, Innlent Farsímasamband á öllum hringveginum
- Mánudagur, 17. desember 2007, Innlent 3G þjónusta Símans tekin í notkun á Akureyri
- Fimmtudagur, 27. mars 2008, Innlent Hægt að greiða í stöðumælinn með GSM símanum
- Föstudagur, 27. júní 2008, Innlent Síminn setur upp GSM senda
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji




































