Mikilvægt að óska aðstoðar tímanlega

stækka

24 stundir

Meira hefur verið um að fyrirtæki hafi hætt starfsemi að undanförnu en í langan tíma. Atvinnuleysi hefur reyndar ekki aukist að ráði, en spár gera almennt ráð fyrir að til þess geti komið. Hætt er við að greiðsluerfiðleikar aukist við þessar aðstæður, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að verðbólga er meiri en verið hefur í tæpa tvo áratugi.

Samkvæmt upplýsingum frá Íbúðalánasjóði hefur umsóknum um aðstoð vegna greiðsluerfiðleika fjölgað nokkuð það sem af er ári miðað við sama tímabil í fyrra, eða um 34%. Samtals bárust stofnuninni 250 umsóknir á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Frá 2004 til 2007 fækkaði umsóknum hins vegar ár frá ári. Þess má geta að fjöldi umsókna var liðlega 700 árið 2004 og yfir 1.000 árið 2003.

Fjármálaráðgjafar hjá bönkum og sparisjóðum, sem haft var samband við, sögðust ekki merkja að ásókn í aðstoð vegna greiðsluerfiðleika hefði aukist mikið. Við því sé þó að búast að breyting geti orðið þar á. Ráðgjafar leggja ríka áherslu á að fólk, sem á á hættu að lenda í greiðsluerfiðleikum, leiti aðstoðar tímanlega og áður en í óefni er komið. Ýmislegt er í boði.

Íbúðalánasjóður

Íbúðalánasjóður aðstoðar íbúðaeigendur í erfiðleikum með að standa skil á lánum frá sjóðnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Rétt er að vekja athygli á því að umsóknir um aðstoð eiga ekki að berast sjóðnum beint heldur banka eða sparisjóði sem fer yfir umsóknina og gerir tillögu til sjóðsins um úrlausn vandans.

Hjá Íbúðalánasjóði er hægt að fá nýtt 5-15 ára lán til að skuldbreyta vanskilum. Einnig er hægt að fá frystingu á lánum Íbúðalánasjóðs, en sjóðurinn hefur heimild til að fresta lánagreiðslum í 3 ár og leggjast afborganir, vextir og verðbætur þá við höfuðstólinn. Greiðslubyrði hækkar því að frystingu lokinni.

Í þriðja lagi hefur Íbúðalánasjóður heimild til að lengja upphaflegan lánstíma um allt að 15 ár þegar lántaki á í greiðsluerfiðleikum. Hámarkslánstími verður þó aldrei lengri en 55 ár. Þá má geta þess að Íbúðalánasjóður getur veitt þeim lántakendum, sem hafa keypt nýja íbúð og geta ekki selt þá gömlu, eins árs frystingu á meðan þeir eru að selja gömlu íbúðina.

Bankar og sparisjóðir

Hjá bönkum og sparisjóðum sem haft var samband við fengust þær upplýsingar að ráðgjafar þeirra geti boðið viðskiptavinunum upp á ýmsa aðstoð, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef á þurfi að halda sé mögulegt að gera ráðstafanir sem geti leitt til lækkunar á greiðslubyrði lána á meðan viðkomandi er að ná aftur tökum á fjármálum sínum.

Erindi sem bönkum og sparisjóðum berast eru af eðlilegum ástæðum einstaklingsbundin og segja viðmælendur hjá bönkum og sparisjóðum að aðstoðin sem þeir bjóði upp á sé því eðlilega í samræmi við það. Mikilvægt sé að leita aðstoðar nógu snemma.

Ráðgjafarstofan

Til viðbótar við þá aðstoð sem fólki stendur til boða hjá Íbúðalánasjóði og bönkum og sparisjóðum er hægt að leita til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Stofan hefur það hlutverk að aðstoða þá sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum. Aðstoðin felst í því að hjálpa fólki að fá yfirsýn yfir stöðu mála, gera áætlanir, velja úrræði og hafa milligöngu um samninga við lánardrottna.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Brotist inn meðan íbúar skruppu frá

21:09 Tilkynnt var um innbrot í heimahús í Grafarvogi klukkan sjö í kvöld og söknuðu húsráðendur sjónvarps og ýmissa raftækja. Þeir brugðu sér af bæ í rúma klukkustund og þegar þeir komu heim var búið að brjóta rúðu og komust þjófarnir þannig inn. Meira »
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.

Stefnan áframhaldandi lágt gengi

20:11 „Það er alveg ljóst mál að þetta kosningaplagg ríkisstjórnarinnar sem kallað hefur verið framkvæmdaáætlun er byggð á þeirri forsendu að gengi íslensku krónunnar haldist álíka veikt og það er í dag,“ segir Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is. Meira »

Meintar falsanir til lögreglunnar

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.
19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
1 dekk 640/13 til sölu.
Ónotað dekk 640/13 til sölu á 5þúsund kall. uppl.8691204...
Bókhald-ársreikningar-skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
3 Silky Terrier strákar til sölu
Tilbúnir til afhendingar. Heilsufarssk., örmerktir og fullbólusettir. Ættbókarf...
BIKINI RAUTT
Aðhaldsföt - Sundbolir - Tankini - Bikini - Náttföt - Undirföt - Sloppar. Frú Si...
 
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...